Stjórn Hornbrekku

21. fundur 03. september 2020 kl. 12:00 - 13:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þorsteinn Þorvaldsson aðalmaður, D lista
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður, H lista
  • Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir formaður I lista
  • Sæbjörg Ágústsdóttir aðalmaður, I lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
Starfsmenn
  • Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar
  • Birna Sigurveig Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður Hornbrekku
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar

1.þjónustusamningur milli Fjallabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands

Málsnúmer 2009005Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að þjónustusamningi milli Fjallabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands um læknaþjónustu. Samningur þessi er tekur við eldri samningi frá árinu 2010. Stjórn Hornbrekku samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

2.Leiðbeiningar um starfsemi hjúkrunarheimila og dagdvala í COVID - 19 faraldri

Málsnúmer 2009006Vakta málsnúmer

Lagt fram
Lagaðar fram til kynningar leiðbeiningar til starfsmanna og hjúkrunarheimila frá embætti landlæknis um sýkingar af völdum kórónuveiru (Covid-19), dags. 6. ágúst 2020.

3.Heimsóknir á Hornbrekku

Málsnúmer 2009007Vakta málsnúmer

Hjúkrunarforstjóri lagði fram reglur um heimsóknir gesta á Hornbrekku sem tóku gildi 27. ágúst sl. Í reglunum kemur fram að eingöngu nánustu aðstandendur mega koma í heimsókn og almenna reglan er að einn gestur komi í heimsókn í einu. Stjórnendur meta aðstæður og geta leyft 2 gestum að hámarki að koma inn á sama tíma á meðan að hættustig almannavarna er í gildi. Nánustu ættingjar hafa kost á að skipta með sér heimsóknum um viku tíma. Heimsóknargestir verða að fara eftir ítrustu leiðbeiningum um sóttvarnir í samfélaginu.

4.Starfsemi Hornbrekku 2020

Málsnúmer 2001116Vakta málsnúmer

Undir þessum lið fundargerðarinnar ræddi hjúkrunarforstjóri starfsmannamál Hornbrekku og stofnsamning við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Í söfnunarátaki sem hrint var af stað fyrir Hornbrekku söfnuðu einstaklingar og félagasamtök og fyrirtæki alls kr. 1.610.760. Fyrir söfnunarféð voru fest kaup á átta Samsung spjaldtölvum, CC SAM pro loftdýnu, MOTO med æfingahjól, bingóvél og bingóspjöld. Fyrir hönd Hornbrekku þakkar hjúkrunarforstjóri sem og stjórn Hornbrekku, öllum þeim sem lögðu til við þessa söfnun, það sem keypt hefur verið mun nýtast íbúum mjög vel.

5.Mat á þörf fyrir hjúkrunarrými í Hornbrekku

Málsnúmer 1911039Vakta málsnúmer

Deildarstjóri félagsmáladeildar og hjúkrunarforstjóri gerðu grein fyrir framvindu verkefnis um mat á framtíðarþörf fyrir fjölda hjúkrunarrýma í Hornbrekku og að mat þörf á stækkun Hornbrekku. Áfangaskýrsla verður lögð fyrir næsta fund stjórnar.

6.Viðhaldsverkefni Hornbrekku 202

Málsnúmer 2001118Vakta málsnúmer

Hjúkrunarforstjóri lagði fram teikningar að breytingum á setustofu Hornbrekku (Norðurstofu). Ákveðið hefur verið að setja þar upp tvö lítil skrifstofurými. Auk þess verður haldið áfram við endurnýjun á fataskápum og gólfefnum. Hjúkrunarforstjóri upplýsti að verið að leggja loka hönd á uppsetningu á nýju sjúkrakallkerfi og einnig ljósleiðaratenginu í herbergi og íbúðir heimilismanna.

Fundi slitið - kl. 13:00.