þjónustusamningur milli Fjallabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands

Málsnúmer 2009005

Vakta málsnúmer

Stjórn Hornbrekku - 21. fundur - 03.09.2020

Lögð fram drög að þjónustusamningi milli Fjallabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands um læknaþjónustu. Samningur þessi er tekur við eldri samningi frá árinu 2010. Stjórn Hornbrekku samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 666. fundur - 08.09.2020

Lögð fram drög að endurnýjuðum þjónustusamningi við Heilbrigðisstofnun Norðurlands um læknisþjónustu og rannsóknarvinnu ásamt bókun 21. fundar stjórnar Hornbrekku.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur deildarstjóra félagsmáladeildar að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 24.04.2026

Fyrir liggja samningar við HSN vegna ferlibíls og notkun hans fyrir skjólstæðinga félagsþjónustunnar sem og hvernig heimkeyrslu með matarbakka er háttað.
Þá liggur fyrir samningur um dagdvöl aldraðra sem fram fer m.a. í húsakynnum HSN í Hornbrekku.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.