Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

207. fundur 02. nóvember 2016 kl. 17:00 - 18:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Guðmundur J Skarphéðinsson formaður, F lista
  • Hilmar Þór Elefsen varaformaður, S lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir aðalmaður, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, B lista
Starfsmenn
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Andri Þór Andrésson tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Andri Þór Andrésson tæknifulltrúi

1.Endurnýjun lóðarleigusamnings Skútustígur 2

Málsnúmer 1609099Vakta málsnúmer

Endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Skútustíg 2.
Siglo Cabin ehf.

Erindi samþykkt.

2.Endurnýjun lóðarleigusamnings Lækjargata 1

Málsnúmer 1609098Vakta málsnúmer


Endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Lækjargötu 1.
Raffó ehf.

Erindi samþykkt.

3.Lóðamörk: Kirkjuvegur 12 og 14.Strandgata 17 og 19.

Málsnúmer 1608029Vakta málsnúmer

Vegna misræmis í lóðarleigusamningum milli ofantaldra lóða samþykkir nefndin að breyta lóðarmörkum milli Kirkjuvegar 12-14 og Strandgötu 17-19 samkvæmt framlögðu lóðarblaði.
Tæknideild falið að kynna rétt lóðarmörk fyrir lóðarhöfum.

4.Fergjun Olíslóðar að Vesturtanga 18, Siglufirði

Málsnúmer 1610068Vakta málsnúmer

VBS Verkfræðistofa fyrir hönd Olís óskar eftir leyfi til þess að fergja lóð Olís að Vesturtanga 18, Siglufirði.

Erindi samþykkt.

5.Viðgerð á fráveituröri Primex

Málsnúmer 1610086Vakta málsnúmer

Rúnar Marteinsson óskar eftir því fyrir hönd Primex ehf að Fjallabyggð ljúki við viðgerð á fráveituröri Primex við Óskarsgötu 7.

Deildarstjóri tæknideildar sýndi fundarmönnum myndbönd af umræddu röri sem tekin voru af kafara 3.júlí 2016 þar sem að hann kafar meðfram lögninni og skoðar ástand hennar. Samkvæmt kafaranum þá er ástand lagnarinnar í lagi. Þó má geta þess að samkvæmt deildarstjóra tæknideildar þarf að setja steyptar sökkur til að tryggja betur festingar og er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun 2017.

6.Gjaldskrár 2017

Málsnúmer 1610003Vakta málsnúmer

Gjaldskrár Fjallabyggðar fyrir árið 2017 lagðar fyrir nefndina.

Nefndin samþykkir fyrir sitt leiti gjaldskrár fyrir árið 2017.

7.Fjárhagsáætlun 2017 og 2018-2020

Málsnúmer 1609020Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun 2017 lögð fyrir nefndina.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun 2017 til bæjarráðs.

8.Umsókn um leyfi til búfjárhalds

Málsnúmer 1610102Vakta málsnúmer

Undir þessum lið vék Guðmundur Skarphéðinsson af fundi.

Umókn um leyfi til búfjárhalds frá Jónu G. Jónsdóttur og Torfa Þórarinssyni lagt fyrir nefnd.

Erindi hafnað þar sem að umsóknin uppfyllir ekki 3.gr. samþykktar um búfjárhald í Fjallabyggð.

9.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1611001Vakta málsnúmer

Ólafur Sigurðsson fyrir hönd Seyru ehf. óskar eftir leyfi til þess að setja upp nýja vöruhurð syðst á vesturvegg suðurbyggingar á Vetrarbraut 23.

Erindi samþykkt.

10.Rekstraryfirlit ágúst 2016

Málsnúmer 1610045Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

11.Útgáfa Landsskipulagsstefnu

Málsnúmer 1610064Vakta málsnúmer

Landsskipulagsstefna Skipulagsstofnunar 2015-2026 ásamt greinargerð lögð fram til kynningar fyrir nefndina.

Fundi slitið - kl. 18:30.