Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

333. fundur 12. maí 2026 kl. 16:00 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Arnar Þór Stefánsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Þorgeir Bjarnason aðalm.
  • Áslaug Inga Barðadóttir aðalm.
  • Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir varam.
Starfsmenn
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Davíð Sævarsson Sviðsstjóri tæknisviðs
Í upphafi fundar bar formaður nefndarinnar upp tillögu þess efnis að taka á dagskrá þrjú mál með afbrigðum:
Fljótagögn - breyting á deiliskipulagi
Umsagnarbeiðni rekstrarleyfi gistingar - Aðalgata 15
Áfangastaðaáætlun Norðurlands (DMP) 2025

Samþykkt með 5 atkvæðum að taka þessi þrjú mál til afgreiðslu á fundinum.

1.Leirutangi - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 2604033Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga vegna breytinga á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020 - 2032, vegna fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi Leirutanga. Tillagan hefur verið kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Nefndin leggur til við bæjarstjórn með tilvísun í 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði auglýst.

2.Leirutangi - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2107019Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Leirutanga, sem kynnt hefur verið í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Breyting á deilskipulagi vegna Vetrarbrautar 8-10

Málsnúmer 2411088Vakta málsnúmer

Breyting á deiliskipulagi Vetrarbrautar 8-10 var auglýst frá 30.3.-11.5. og bárust engar athugasemdir.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt og sent til Skipulagsstofnunar í samræmi við 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Fljótagöng - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2509034Vakta málsnúmer

Lögð er fram umsögn HMS skv. 1.mgr. 42. gr. skipulagslaga. Einnig lögð fram uppfærð gögn þar sem komið er til móts við framlagðar umsagnir stofnunarinnar.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlögð gögn og birt skuli auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

5.Umsagnarbeiðni rekstrarleyfi gistingar - Aðalgata 15

Málsnúmer 2604062Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra þar sem óskað er umsagnar Fjallabyggðar á umsókn Welcome Iceland ehf. um gistileyfi vegna reksturs gististaðar að Aðalgötu 15, Ólafsfirði.
Synjað
Starfsemin fellur undir rekstrarleyfisskylda gististarfsemi í flokki II samkvæmt lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Samkvæmt lögum skal rekstrarleyfisskyld gististarfsemi innan þéttbýlis vera rekin í samþykktu atvinnuhúsnæði. Fyrirhuguð starfsemi samræmist því ekki aðalskipulagi sveitarfélagsins, þar sem Aðalgata 15 er staðsett á skilgreindu íbúðarsvæði.
Nefndin leggur því til að umsókn um rekstur gististarfsemi að Aðalgötu 15 verði hafnað.

6.Áfangastaðaáætlun Norðurlands (DMP) 2025

Málsnúmer 2503013Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Markaðsstofu Norðurlands þar sem óskað er eftir uppfærslu á verkefnum Fjallabyggðar við uppbyggingu áfangastaða á svæðinu.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin leggur til að stikun Botnaleiðar og fuglaskoðunarhús verði tekin út úr áfangastaðaáætlun þar sem þessi verkefni eru þegar í þeim farvegi að þeim verði lokið. Þess í stað verði horft til nýrra verkefna og þau undirbúin í ár með það fyrir augum að hægt verði að sækjum um styrk fyrir verkefnunum í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða haustið 2026.
Nefndin telur að horfa megi til stefnu um komu skemmtiferðaskipa og þá aðstöðusköpun fyrir framan Síldarminjasafn sem þar er lögð til sem nýtt verkefni. Í bígerð er nýtt deiliskipulag á Leirutanga þar sem frekari uppbygging í griðlandi fugla, stígagerð og önnur aðstöðusköpun við nýtt fuglaskoðunarhús, mun verða fest í sessi. Þetta afmarkaða verkefni mætti móta í samráði við Fuglavinafélag Siglufjarðar. Þá telur nefndin áfram brýnt að aflað verði nauðsynlegra leyfa eða réttinda til að leggja stíg út að rústum Evanger og áfram út að Selvíkurvita í samræmi við núverandi áfangastaðaáætlun og fyrri úthlutun úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Einnig leggur nefndin til að skoðað verði sérstaklega hvort geri megi hjöllum í Ólafsfirði sérstök skil í gegnum verkefni sem yrði formfest í gegnum áfangastaðaáætlun. Að lokum leggur nefndin til að leitað verði til ferðaklasans í Fjallabyggð um samvinnu um áfangastaðaáætlunina.
Tæknideild er falið að vinna málið áfram.
Formaður þakkar öllum nefndarmönnum og starfsmönnum fyrir frábært samstarf síðastliðin 4 ár.

Fundi slitið - kl. 18:00.