Öldungaráð Fjallabyggðar

11. fundur 08. september 2026 kl. 15:00 - 16:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Sæunn Gísladóttir Aðalmaður
  • Þorgeir Bjarnason Aðalmaður
  • Ólafur Baldursson fulltrúi eldri borgara
  • Þorbjörn Sigurðsson fulltrúi eldri borgara
  • Ólafur Þór Ólafsson fulltrúi eldri borgara
  • Anna María Guðlaugsdóttir Varamaður
  • Elín Arnardóttir fulltrúi heilsugæslu
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
Gestir: Helga Hermannsdóttir og Gerður Ellertsdóttir

1.Húsnæðismál félags eldri borgara Siglufjarðar

Málsnúmer 2609011Vakta málsnúmer

Ósk félags eldri borgara á Siglufirði um að könnuð verði þörf á húsnæði fyrir eldra fólk.
Vísað til bæjarráðs
Félag eldri borgara á Siglufirði lagði fram erindi varðandi húsnæðismál eldra fólks í Fjallabyggð. Í erindinu er óskað eftir því að bæjarráð láti kanna þörf og áhuga meðal íbúa 60 ára og eldri á sérstökum búsetuúrræðum fyrir aldurshópinn, hvort sem um er að ræða leigu- eða kaupleiðir.

Öldungaráð tekur undir erindið og beinir því til bæjarráðs að kannaður verði áhugi og þörf fyrir slíkt húsnæði í Fjallabyggð.

2.Áherslur LEB 2026-2027

Málsnúmer 2609012Vakta málsnúmer

Kynning á áhersluatriðum Landsambands eldri borgara 2026-2027
Vísað til bæjarráðs
Öldungaráð Fjallabyggðar tekur undir áherslur Landssambands eldri borgara sem snúa að sveitarfélögum og varða húsnæðisöryggi og fjárhagslega stöðu eldra fólks.

Ráðið leggur sérstaklega áherslu á að húsnæðiskostnaður sé viðráðanlegur og að húsaleiga í almennum íbúðum fari ekki yfir 25% af ráðstöfunartekjum, í samræmi við markmið laga nr. 52/2016 um almennar íbúðir. Jafnframt verði skoðað hvernig tryggja megi eldri borgurum raunhæfan afslátt af fasteignagjöldum, meðal annars með endurskoðun og hækkun tekjuviðmiða.

Þá tekur öldungaráð undir mikilvægi þess að stuðlað verði að uppbyggingu hagkvæmra leiguíbúða á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga, enda geti slík uppbygging verið mikilvægur þáttur í að fjölga raunhæfum og öruggum búsetukostum fyrir eldra fólk.

3.Málþing um einhverfu fullorðinna

Málsnúmer 2609013Vakta málsnúmer

Málþing um einhverfu fullorðinna á Akureyri.
Lagt fram til kynningar
Öldungaráði barst erindi frá Geðverndarfélagi Akureyrar vegna málþings um málefni fullorðinna einhverfra.

Öldungaráð fagnar því að athygli sé beint að stöðu og þjónustu við fullorðið einhverft fólk og telur mikilvægt að efla þekkingu og umræðu um þarfir þessa hóps á öllum æviskeiðum.

Ráðið hvetur íbúa, aðstandendur, starfsfólk velferðarþjónustu og aðra áhugasama til að kynna sér dagskrá málþingsins og nýta tækifærið til þátttöku, annaðhvort á staðnum eða í gegnum streymi.

4.Erindi til nýkjörinna sveitarstjórnarfulltrúa

Málsnúmer 2609014Vakta málsnúmer

Hvatning LEB til nýkjörinna sveitarstjórnarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar
Öldungaráði barst erindi Landssambands eldri borgara um skipan öldungaráða og mikilvægi virks samráðs við eldra fólk.

Öldungaráð Fjallabyggðar tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í erindinu. Ráðið hefur á undanförnu ári lagt áherslu á virkt starf, reglulega umræðu um málefni eldra fólks og að koma ábendingum og tillögum á framfæri við sveitarfélagið.

Öldungaráð telur mikilvægt að áfram verði byggt á þeirri vinnu og að ráðið fái tækifæri til að koma að stefnumótun og ákvörðunum sveitarfélagsins sem varða eldra fólk, þjónustu, búsetu, aðgengi og lífsgæði þess.

Ráðið leggur jafnframt áherslu á gott upplýsingaflæði og skýrar leiðir til samráðs milli öldungaráðs, nefnda og bæjarstjórnar þannig að þekking og reynsla eldra fólks nýtist við ákvarðanatöku og þróun þjónustu í Fjallabyggð.

Formaður hvatti forystu félaganna til að huga að kynjaskiptingu í ráðinu en aðalmenn eru allt karlar.

5.Öldungaráð - Önnur mál 2025-2030

Málsnúmer 2502023Vakta málsnúmer

Kynning á félagsstarfi eldri borgara
Lagt fram til kynningar
Umsjónarkonur félagsstarfs eldra fólks í Fjallabyggð komu á fund öldungaráðs og kynntu starfsemina.

Helga Hermannsdóttir kynnti dagdvöl og félagsstarf í Skálarhlíð í máli og myndum. Starfið er fjölbreytt og þátttaka almennt góð. Um 35 manns nýta sér hádegisverð að staðaldri, bæði fólk utan úr bæ og íbúar en 25 íbúar búa í Skálarhlíð.

Gerður Ellertsdóttir kynnti dagdvöl og félagsstarf á Hornbrekku, þar sem þátttaka er einnig góð. Ýmis verkefni og viðburðir eru hluti af starfinu. Börn frá leikskólanum koma í heimsókn einu sinni í mánuði og fyrirhugað er að Stúlli og Stebbi Villi komi mánaðarlega og leiki og syngi fyrir gesti. Framundan er meðal annars kráarkvöld 23. október auk dagskrár með bleiku þema.

Öldungaráð þakkar Helgu og Gerði fyrir góða kynningu og lýsir ánægju með það fjölbreytta félagsstarf sem í boði er fyrir eldra fólk í Fjallabyggð.


6.Félagsaðstaða félagssamtaka eldri borgara

Málsnúmer 2609015Vakta málsnúmer

Félagsaðstaða eldri borgara á Siglufirði.
Lagt fram til kynningar
Félag eldri borgara á Siglufirði óskar eftir samtali um félagsaðstöðu sem gæti nýst starfsemi félagsins, meðal annars til varðveislu gagna og muna sem henni tengjast.

Helga Hermannsdóttir, forstöðumaður Skálarhlíðar, benti á aðstöðu á neðri hæð Skálarhlíðar sem mögulega gæti hentað fyrir starfsemi félagsins. Fulltrúar félagsins munu skoða aðstöðuna og meta hvort hún geti mætt þörfum félagsins.

Fundi slitið - kl. 16:15.