Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

120. fundur 16. október 2025 kl. 16:00 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Jón Kort Ólafsson aðalm.
  • Sigríður Guðmundsdóttir varaformaður
  • Ægir Bergsson formaður
  • Karen Sif Róbertsdóttir aðalm.
  • Ásta Lovísa Pálsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Styrkumsóknir 2026 - Hátíðarhöld og stærri viðburðir í Fjallabyggð

Málsnúmer 2508053Vakta málsnúmer

Fyrir liggja umsóknir sem bárust um styrki til hátíðarhalda og stærri viðburða árið 2026. Allar umsóknir sem teknar voru fyrir bárust innan tilskilins frests.
Vísað til bæjarráðs
Umsóknir um styrki til hátíðarhalda og stærri viðburða fyrir árið 2026 lagðar fram til umfjöllunar. Markaðs- og menningarnefnd veitir umsögn um umsóknirnar til bæjarráðs sem úthlutar styrkjum til hátíðarhalda í upphafi nýs árs.

2.Styrkumsóknir 2026 - Menningarmál

Málsnúmer 2508056Vakta málsnúmer

Fyrir liggja umsóknir um menningarstyrki til einstakra verkefna fyrir árið 2026.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Markaðs- og menningarnefnd tók umsóknir um menningarstyrki til einstakra verkefna, fyrir árið 2026, til umfjöllunar. Markaðs- og menningarnefnd vísar tillögu að úthlutun menningarstyrkja fyrir árið 2026 til afgreiðslu bæjarstjórnar og gerðar fjárhagsáætlunar en gert er ráð fyrir birtingu á úthlutun í byrjun árs 2026.

3.Styrkumsóknir 2025 - Rekstrarstyrkir til safna og setra.

Málsnúmer 2508054Vakta málsnúmer

Fyrir liggja umsóknir um styrki til reksturs safna og setra fyrir árið 2026.
Vísað til bæjarráðs
Umsóknir um rekstrarstyrki til safna og setra fyrir árið 2026 lagðar fram til kynningar og umfjöllunar. Markaðs- og menningarnefnd veitir umsögn um umsóknirnar til bæjarráðs sem úthlutar rekstrarstyrkjum til safna og setra í upphafi nýs árs.

4.Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2026

Málsnúmer 2510057Vakta málsnúmer

Auglýst verður eftir tilnefningum um Bæjarlistamann Fjallabyggðar 2026.
Samþykkt
Samþykkt að óska eftir tilnefningum um Bæjarlistamann fyrir árið 2026 og verður frestur til að skila inn tilnefningu til 15. nóvember n.k.

Fundi slitið - kl. 18:00.