Styrkumsóknir 2026 - Hátíðarhöld og stærri viðburðir í Fjallabyggð

Málsnúmer 2508053

Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 120. fundur - 16.10.2025

Fyrir liggja umsóknir sem bárust um styrki til hátíðarhalda og stærri viðburða árið 2026. Allar umsóknir sem teknar voru fyrir bárust innan tilskilins frests.
Vísað til bæjarráðs
Umsóknir um styrki til hátíðarhalda og stærri viðburða fyrir árið 2026 lagðar fram til umfjöllunar. Markaðs- og menningarnefnd veitir umsögn um umsóknirnar til bæjarráðs sem úthlutar styrkjum til hátíðarhalda í upphafi nýs árs.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 897. fundur - 06.11.2025

Fyrir liggur tillaga markaðs - og menningarnefndar um úthlutun styrkja til hátíðarhalda og stærri viðburða í Fjallabyggð fyrir árið 2026.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu nefndarinnar og vísar henni til seinni umræðu bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun 2026. Endanleg úthlutun verður tilkynnt umsækjendum í byrjun janúar 2026.