Styrkumsóknir 2026 - Menningarmál

Málsnúmer 2508056

Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 120. fundur - 16.10.2025

Fyrir liggja umsóknir um menningarstyrki til einstakra verkefna fyrir árið 2026.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Markaðs- og menningarnefnd tók umsóknir um menningarstyrki til einstakra verkefna, fyrir árið 2026, til umfjöllunar. Markaðs- og menningarnefnd vísar tillögu að úthlutun menningarstyrkja fyrir árið 2026 til afgreiðslu bæjarstjórnar og gerðar fjárhagsáætlunar en gert er ráð fyrir birtingu á úthlutun í byrjun árs 2026.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 897. fundur - 06.11.2025

Fyrir liggur tillaga markaðs - og menningarnefndar um úthlutanir almennra menningarstyrkja fyrir árið 2026.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu nefndarinnar og vísar henni til seinni umræðu bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun 2026. Endanleg úthlutun verður tilkynnt umsækjendum í byrjun janúar 2026.