Hafnarstjórn Fjallabyggðar

59. fundur 04. júlí 2014 kl. 12:00 - 13:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Gunnlaugur Oddsson aðalmaður F lista
  • Steingrímur Ó. Hákonarson aðalmaður D lista
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson aðalmaður D lista
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
  • Ríkharður Hólm Sigurðsson aðalmaður, F lista
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson hafnarstjóri

1.Nýtt starf hafnarvarðar

Málsnúmer 1405046Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um starf hafnarvarðar við hafnir Fjallabyggðar. Ein umsókn barst og er hún frá Kjartani Smára Ólafssyni.

Kjartan hefur langa reynslu við störf hafnarvarðar enda hefur hann leyst af í 13 ár á Siglufirði.

Hafnarstjóri lagði til að hann yrði ráðinn.

Hafnarstjórn staðfestir tillögu og ákvörðun hafnarstjóra samhljóða.

2.Rekstraryfirlit apríl 2014

Málsnúmer 1406028Vakta málsnúmer

Lagt fram rekstraryfirlit fyrir janúar til apríl 2014.

Tekjur eru lægri um 3.5 m.kr. Launaliðir eru undir áætlun um 0.2 m.kr. Annar rekstrarkostnaður eru lægri um 3.8 m.kr. og fjármagnsliðir eru lægri um 0.1 m.kr.

Lagt fram til kynningar.

3.Umræða um frárennsli í Fjallabyggð

Málsnúmer 1406077Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla frá VSÓ ráðgjöf er varðar endurbætur á fráveitu á Siglufirði. Sambærileg skýrsla er í vinnslu fyrir Ólafsfjörð.

Nú er verið að vinna við lögn meðfram Snorragötu að dælubrunni við Gránugötu.

Hafnarstjórn leggur áherslu á að vinna við lagnir á hafnarsvæðinu komi til framkvæmda hið fyrsta. Verið er að setja upp dælubúnað til að dæla rækju á milli húsa á hafnarsvæðinu. 

4.Ásýnd sveitarfélagsins

Málsnúmer 1406075Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Hafnarstjórn leggur áherslu að umhverfi hafna sé til fyrirmyndar.

5.Úttekt á eignum bæjarfélagsins

Málsnúmer 1406057Vakta málsnúmer

Til umræðu komu neðantaldar eignir sem kalla á viðhald og eða endurbyggingu.

 

1. Til umræðu kom Hafnarbyggja á Siglufirði

2. Tenging á milli Óskarsbryggju að Hafnarbryggju.

3. Bryggju frá Fiskmarkaði að togarabryggju.

4. Bryggum í suðurhöfninni - vestur og suðurþil.

5. Flotbryggju á Ólafsfirði

6. Norðurbryggju Ólafsfirði.

Hafnarstjórn telur rétt og eðlilegt að málið sé til skoðunar og frekari umræðu á næsta fundi hafnarstjórnar.

Nauðsynlegt er að forgangsraða verkefnum fyrir áætlunargerð næsta árs.

 

 

 

6.Hafnarbryggja - upplýsingar og næstu skref

Málsnúmer 1202095Vakta málsnúmer

Gerð grein fyrir fundi með siglingasviði Vegagerðar ríkisins frá 26.06.2014.

Hafnarstjóri gat þess að hann hefði átt fund með siglingasviði Vegagerðarinna þann 26.06.2014 í Reykjavík. Þar var lögð áhersla á að koma fjárveitingu Hafnarbryggju inn í samgönguáætlun. Bréf mun berast fljótlega frá stofnunni þar sem fram mun koma kostnaður við framkvæmdirnar og farið yfir stöðu málsins.

Hafnarstjórn leggur áherslu á að næsti fundur verði fljótlega eða þegar umrætt bréf hefur borist.

Fundi slitið - kl. 13:00.