Hafnarstjórn Fjallabyggðar

118. fundur 02. febrúar 2021 kl. 16:30 - 17:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson formaður, D lista
  • Andri Viðar Víglundsson aðalmaður, H lista
  • Helga Helgadóttir varamaður, D lista
  • Ægir Bergsson aðalmaður, I lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
Starfsmenn
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
  • Heimir Sverrisson yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar

1.Aflatölur 2020

Málsnúmer 2004048Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri lagði fram og kynnti aflatölur fyrir árið 2020 með samanburði við árið 2019. Á Siglufirði hefur verið landað 23.603 tonnum í 1.951 löndunum en á sama tíma í fyrra hafði verið landað 28.830 tonnum í 1.873 löndunum. Á Ólafsfirði hefur verið landað 517 tonnum í 300 löndunum, á sama tímabili í fyrra var landað 389 tonnum í 363 löndunum.

2.Aflatölur 2021

Málsnúmer 2101067Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri lagði fram og kynnti aflatölur til og með 31. janúar með samanburði við fyrra ár. Á Siglufirði hefur verið landað 658 tonnum í 29 löndunum en á sama tíma í fyrra hafði verið landað 480 tonnum í 15 löndunum. Á Ólafsfirði hefur verið landað 3 tonnum í 5 löndunum, á sama tímabili í fyrra var landað 1 tonni í 1 löndun.

3.Vefmyndavélar við Fjallabyggðarhafnir

Málsnúmer 2101065Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri og yfirhafnarvörður fóru yfir málið, endurnýja þarf hluta búnaðar og er áætlaður kostnaður við uppsetningu búnaðar og yfirferð eldri búnaðar kr. 1.000.000,-

Hafnarstjórn samþykkir að fara í verkefnið og að myndir úr vefmyndavélum verði aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins.

4.Flotbryggjan í Ólafsfirði

Málsnúmer 2101069Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri og yfirhafnarvörður fóru yfir málið, leitað hefur verið til siglingasviðs Vegagerðarinnar um ráðgjöf ásamt að rætt hefur verið við þá sem seldu sveitarfélaginu núverandi bryggju.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og yfirhafnarverði að vinna málið áfram í samráði við tæknideild.

5.Gjaldskrár 2021

Málsnúmer 2009064Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri lagði fyrir fundinn tillögu að breyttri gjaldskrá. Um er að ræða breytingu á 20. grein gjaldskrár. Lagt er til að í stað 1,25 evru farþegagjalds verði gjaldið 175 kr. fyrir árið 2021.

Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu um breytingu á gjaldskrá.

6.Fundur hafnarstjórnar - Önnur mál 2020

Málsnúmer 2011027Vakta málsnúmer

Farið yfir framkvæmdir og viðhald í Fjallabyggðarhöfnum.

7.Fundadagatöl 2021

Málsnúmer 2011044Vakta málsnúmer

Fram er lagt til kynningar fundadagatal ráða, stjórna og nefnda vegna yfirstandandi árs.

8.Breytingar á vigtarhúsi, verðkönnun

Málsnúmer 2101024Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri og deildarstjóri tæknideildar fóru yfir og kynntu niðurstöðu verðkönnunar, tvö tilboð bárust í endurbætur á vigtarhúsi á hafnarvog á Siglufirði, annars vegar frá Berg ehf. að fjárhæð kr. 4.998.855 og hins vegar frá L7 ehf. að fjárhæð kr. 3.249.960. Við yfirferð tilboða kom í ljós villa í samlagningu hjá Berg ehf. og lækkaði tilboð þeirra í 4.973.855. Kostnaðaráætlun tæknideildar er kr. 3.198.000.
Bæjarráð lagði til á fundi sínum fyrr í dag að gengið yrði til samninga við lægstbjóðanda.

9.Prammi á Óskarsbryggju

Málsnúmer 2101066Vakta málsnúmer

Lagt er fyrir fundinn erindi Brynju Hafsteinsdóttur dags 19. janúar sl.. Í erindinu er óskað upplýsinga um ástæður og forsögu þess að prammi hefur um langa hríð verið til viðgerða á Óskarsbryggju, enn fremur er óskað upplýsinga um hvort eigandi prammans hafi greitt fyrir þá aðstöðu sem hann nýtir, þ.e. hvort greitt hafi verið fyrir stöðuleyfi.

Hafnarstjórn felur deildarstjóra tæknideildar, í samvinnu við hafnarstjóra, að svara erindinu. Einnig felur hafnarstjórn yfirhafnarverði að skoða fyrirkomulag geymslu lausamuna á hafnarsvæðinu og koma með tillögu að úrbótum.

10.Viðbragðsáætlanir hafna 2021 - Fjallabyggðahafnir

Málsnúmer 2101080Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn felur yfirhafnarverði að fara yfir og uppfæra viðbragðsáætlanir Fjallabyggðarhafna og skila inn umbeðnum gögnum í samræmi við innsent erindi Umhverfisstofnunar dags. 22.01.2021.

11.Sérstakt strandveiðigjald til hafna

Málsnúmer 2011045Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

12.Hafnasambandsþing 2020

Málsnúmer 2007012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

13.Fundargerðir Hafnasambands Íslands

Málsnúmer 2003065Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

14.Fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga - 2020

Málsnúmer 2011047Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

15.Fundargerðir Hafnasambands Íslands - 2021

Málsnúmer 2101074Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:45.