Eftirlitsskýrslur Heilbrigðiseftirlits NV 2026

Málsnúmer 2604025

Vakta málsnúmer

Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar - 13. fundur - 23.09.2026

Fyrir liggja skýrslur Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra er varðar losun lífræns úrgangs frá G1 í fráveitukerfi Ólafsfjarðar.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin leggur til að formaður ásamt sviðsstjóra hittist á staðnum með málsaðila.

Bókun frá fulltrúa D lista: Málið er til meðferðar hjá Heilbrigðiseftirlitinu og því telur fulltrúi D-lista ekki tilefni til sérstakrar umfjöllunar af hálfu nefndarinnar. Í fyrirliggjandi skýrslu kemur skýrt fram hvaða úrbætur málsaðili þarf að ráðast í svo unnt sé að leysa málið. Ábyrgð á þeim úrbótum hvílir alfarið á málsaðila og ekki þörf á aðkomu sveitarfélagsins.