Færsla og viðhald löndunarkrana á Siglufirði

Málsnúmer 2610068

Vakta málsnúmer

Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar - 14. fundur - 28.10.2026

Fyrir liggur erindi frá FMS þar sem þess er óskað að nefndin taki til umfjöllunar staðsetningu, fjölda og ástand krana á hafnarsvæðinu á Siglufirði. Í úttekt á löndunarkrönum á Siglufirði eru tveir löndunarkranar dæmdir óviðgerðarhæfir vegna mikils kostnaðar og því aðeins einn löndunarkrani í góðu standi. Óskað er eftir því í erindinu að nýr krani verði staðsettur á suðurkanti Hafnarbryggju.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Nefndin telur brýnt að bregðast við og mælist til þess að í fjárfestingaáætlun fyrir árið 2027 sé gert ráð fyrir kaupum á löndunarkrana á hafnarsvæðinu á Siglufirði og í framhaldinu endurnýjun á þeim krönum sem þarfnast endurnýjunar. Mikilvægt er að fá tilboð í löndunarkrana sem fyrst og taka svo umræðu um umfang fjárfestingar og nákvæma staðsetningu löndunarkrana í samráði við hagsmunaaðila.