Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

41. fundur 14. ágúst 2017 kl. 17:00 - 18:50 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Ríkharður Hólm Sigurðsson aðalmaður, S lista
  • Hjördís Hanna Hjörleifsdóttir varamaður, D lista
  • Steinunn María Sveinsdóttir varamaður, S lista
  • Nanna Árnadóttir varamaður, S lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála

Rósa Jónsdóttir boðaði forföll og enginn mætti í hennar stað.

Fulltrúi foreldra grunnskólans boðaði forföll. Enginn fulltrúi foreldra mætti frá leikskóla. Fulltrúi starfsmanna leikskólans mætti ekki.

1.Málefni Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1708017Vakta málsnúmer

Skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar Jónína Magnúsdóttir og Sigurlaug Guðjónsdóttir fulltrúi kennara sátu undir þessum lið.

Skólasetning fer fram miðvikudaginn 23. ágúst 2017, stundaskrár og ritföng verða afhent. Nemendur 1. bekkjar mæta í boðuð viðtöl til umsjónarkennara.

Skráðir nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar eru 196. 106 nemendur eru í starfsstöðinni á Siglufirði og 90 í starfsstöðinni í Ólafsfirði.

Skólastarf er undirbúið skv. nýrri fræðslustefnu og munu nemendur 1.-5. bekkjar verða á Siglufirði og nemendur 6.-10. bekkjar í Ólafsfirði. Kennsla í 1.-5.bekk hefst kl. 8.30 en kennsla í 6.-10.bekk hefst kl. 8.10.

50 starfsmenn mæta til starfa í haust, 32 kennarar og 18 aðrir starfsmenn. Meiri mannabreytingar eru nú miðað við síðustu ár. Sólveig Rósa Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri var ráðin 1. ágúst ásamt Ásu Björk Stefánsdóttur umsjónarkennara 5. bekkjar, Gurrý Önnu Ingvarsdóttur sérkennara og Gunnlaugu Björk Guðbjörnsdóttur sérkennara. Sigríður Ásta Hauksdóttir náms- og starfsráðgjafi verður í 20% starfi við skólann en hún mun einnig vinna við MTR.

Nemendum í 1.-4. bekk stendur til boða að sækja Frístund að loknum skóladegi kl. 13.30-14.30. Frístund er tómstundastarf skipulagt af Fjallabyggð í samstarfi við tónlistarskóla, grunnskóla og íþróttafélög. Nemendur í 1.-3. bekk hafa möguleika á að sækja lengda viðveru kl. 14.30-16.00.

Samstarf Grunnskóla Fjallabyggðar við MTR hefur verið aukið. Nokkrir nemendur í unglingadeild sækja þar valgreinar (vélmennafræði og blak), sem er viðbót við ensku og grunnáfanga í náttúru- og félagsvísindum sem 10. bekkingar hafa getað stundað sl. ár.

2.Samþætting á skóla og frístundastarfi

Málsnúmer 1708013Vakta málsnúmer

Skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar Jónína Magnúsdóttir og Sigurlaug Guðjónsdóttir fulltrúi kennara sátu undir þessum lið.

Farið yfir tillögu starfshóps um samþættingu á skóla- og frístundastarfi. Að loknum skóladegi 1.-4.bekkjar tekur við skipulagt starf sem er samstarfsverkefni Fjallabyggðar, Tónlistarskólans á Tröllaskaga og íþróttafélaga. Fjögur íþróttafélög hafa ákveðið að taka þátt í Frístund. Það eru KF, TBS, Glói og BF. Skipulag Frístundar verður kynnt foreldrum á næstu dögum og skráning mun fara fram í vikunni.

3.Ritfangakaup í Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1703051Vakta málsnúmer

Skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar Jónína Magnúsdóttir og Sigurlaug Guðjónsdóttir fulltrúi kennara sátu undir þessum lið.

Við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2017 var ákveðið að leggja fjármagn í kaup á ritföngum fyrir nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar. Við skólabyrjun mun skólinn afhenda nemendum ritfangapakka að gjöf frá sveitarfélaginu. Ritfangapakkinn er svipaður milli árganga og felur í sér skriffæri, stíla- og reikningsbækur, skæri, teygjumöppu, tréliti, reglustikur o.s.frv. eftir þörfum hvers árgangs. Það sem ekki er í ritfangapakkanum þurfa foreldrar að útvega.

4.Hönnun skólalóðar við Norðurgötu - Siglufirði

Málsnúmer 1512011Vakta málsnúmer

Skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar Jónína Magnúsdóttir og Sigurlaug Guðjónsdóttir fulltrúi kennara sátu undir þessum lið.

Deildarstjóri upplýsti fundarmenn um framgang framkvæmda við skólalóð við Norðurgötu. Áætluð verklok 1. áfanga eru í lok ágúst.

5.Skólalóð v. Tjarnarstíg

Málsnúmer 1708027Vakta málsnúmer

Skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar Jónína Magnúsdóttir og Sigurlaug Guðjónsdóttir fulltrúi kennara sátu undir þessum lið.

Fræðslu- og frístundarnefnd leggur til við bæjarráð að kefli verði fjarlægð af skólalóð grunnskólans við Tjarnarstíg í Ólafsfirði vegna athugasemda eftirlitsaðila.

6.Skóladagatal 2017-2018

Málsnúmer 1703080Vakta málsnúmer

Skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar Olga Gísladóttir sat undir þessum lið.

Leikskólastjóri fór yfir viðbótaropnun Leikskála. Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að sumaropnun á næsta ári verði með svipuðum hætti og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði.

7.Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2017

Málsnúmer 1705026Vakta málsnúmer

Grunnskóli Fjallabyggðar fékk úthlutað kr. 216.000 úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla vegna námskeiðs fyrir starfsfólk á skólaárinu 2017-2018.

8.Beiðni um skólavist utan lögheimilissveitarfélags

Málsnúmer 1708018Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um skólavist utan lögheimilissveitarfélags á skólaárinu 2017-2018. Samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 18:50.