Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

163. fundur 17. ágúst 2026 kl. 16:15 - 18:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Kristinn Kristjánsson aðalm.
  • Kristín Margrét Halldórsdóttir aðalm.
  • Rut Jónsdóttir aðalm.
  • Sandra Finnsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
Á fundinn mættu Brynhildur Reykjalín, fulltrúi kennara grunnskólans, Halldóra Högnadóttir, fulltrúi leikskólakennara og Auður Ösp Hlíðdal, fulltrúi foreldrafélags leikskólans.

1.Upphaf skólastarfs grunnskólans

Málsnúmer 2608018Vakta málsnúmer

Guðrún Unnsteinsdóttir mætti á fundinn og fór yfir upphaf skólaársins.
Lagt fram til kynningar
Guðrún Unnsteinsdóttir, skólastjóri, mætti á fund nefndarinnar og fór yfir upphaf skólastarfsins. Nefndin óskar Guðrúnu til hamingju og býður hana velkomna til starfa sem skólastjóra.

Nemendur skólans eru 214 og skiptast nánast jafnt á milli skólahúsanna. Sautján nýnemar eru í 1. bekk. Skólasetning verður 24. ágúst kl. 10-11 á yngra stigi og kl. 13-14 á eldra stigi. 1. bekkingar verða boðaðir sérstaklega.

Helsta verkefnið nú í upphafi skólaársins er að koma öllum gögnum inn í nýtt kerfi, Námfús í stað Mentor og ljóst að kennarar þurfa tíma til að læra á það.

Skipa þarf innleiðingarteymi vegna innleiðingar á nýju námsmati sem hefst í haust samkvæmt ákvörðun mennta- og barnamálaráðherra.

Heillaspor verður innleitt í skólastarfið í vetur og mun Guðrún, ásamt fleira fólki úr skólanum, vera í innleiðingarhópi en af hálfu skólaskrifstofunnar halda Ásdís, deildarstjóri og Helga, þroskaþjálfi, utan um starfið.

Nemendur 7. bekkjar fara í skólabúðir á Reykjum í næstu viku.

Guðrún fór yfir niðurstöður könnunar vegna skólabyrjunar sem er almennt jákvæð. Skólinn hyggst reyna að mæta nokkrum athugasemdum strax í vetur sem verða kynntar von bráðar.

Nefndarmenn hyggjast heimsækja bæði skólahúsin á næstunni og fela starfsmanni og skólastjóra að finna hentugan tíma.

2.Upphaf skóladags á unglingastigi grunnskólans

Málsnúmer 2404025Vakta málsnúmer

Niðurstaða könnunar meðal foreldra barna í eldri deild grunnskólans vegna breytinga á upphafi skóladags.
Lagt fram til kynningar
Niðurstaða könnunarinnar er heilt yfir jákvæð en eins og kom fram hjá skólastjóra hefur verið ákveðið að bregðast við því sem þar kom fram m.a. með því að nemendur geti mætt í vinnustofu strax kl. 8. Foreldrar fá upplýsingar von bráðar.

3.Upphaf leikskólastarfs

Málsnúmer 2608019Vakta málsnúmer

Kristín María Karlsdóttir, leikskólastjóri mætir á fundinn og fer yfir upphaf leikskólans eftir sumarfrí.
Lagt fram til kynningar
Kristín María Karlsdóttir,leikskólastjóri, fer yfir skólabyrjun leikskólans. 108 börn eru í leikskóla Fjallabyggðar. Elsti hópurinn í leikskólanum í Ólafsfirði hefur aðsetur á Tröllahóli sem er í nýbyggingunni. Á Leikhólum er flæði í morgunmat sem hefur gengið vel. Bæta þarf starfsmannaaðstöðu þar enda mjög lítil.

Starfsmannamál: Búið er að ráða í allar stöður, á Leikhólum eru 14 stöður en 18 starfsmenn á Leikskálum eru 15 stöðugildi en 17 starfsmenn. Þrír starfsmenn eru í veikindaleyfi en koma vonandi til starfa fljótlega.

23 börn nýta sér styttri vistun, aðeins þrjú af þeim sem nýta sér nýja fyrirkomulagið, að vera 30 tíma í leikskólanum. þ.e. frí í einn dag í viku. Átta foreldrar eru að nýta sér afslátt af leikskólagjöldum í gegnum tekjutenginguna sem er frá 25%-75%.

Breyting hefur orðið á vistunartíma sem er orðin sveigjanlegri en var og er það til að koma til móts við athugasemdir sem komu fram við skoðanakönnunina sem gerð var í vor á meðal foreldra.

Verið er að gera breytingar á Leikskálum, flæði er í matmálstímum hjá þrem elstu árgöngum, matstofa á ganginum þar sem þau koma saman og borða, morgunmat, hádegismat og hressingu, hluti í einu og skammta sér sjálf og fara svo inn á deild þegar þau eru búin að borða og næstu koma fram. Fyrsta vikan lofar mjög góðu.

Búið er að skipuleggja svæði á göngunum með ýmsu dóti og börnin blandast af deildum og leika saman. Ekki þarf að taka saman allt eftir daginn eins og verið hefur heldur er hægt að ganga að leiksvæðunum næsta dag.

Verið er að vinna að nýjum námsvísi með aðstoð Ásgarðs, ráðgjafa í skólaþjónustu, sem verður kynntur í september. Áhersla er lögð á þemavinnu. Einn starfsmaður verður m.a. með söngstund fyrir hverja deild í hverri viku.

Nefndarmenn óska eftir að koma í heimsókn og fela starfsmanni og leikskólastjóra að finna hentugan tíma.

4.Umsjón Neon og frístundamála 2026

Málsnúmer 2606032Vakta málsnúmer

Ráðning umsjónarmanns í frístundastarf og Neon.
Lagt fram til kynningar
Karen Sif hefur verið ráðin sem umsjónarmaður Neon og frístundar- og lengdrar viðveru. Nefndin óskar Karen til hamingju með starfið og óskar henni velfarnaðar í starfi.

5.Ungt fólk og lýðheilsa

Málsnúmer 2605050Vakta málsnúmer

Kynning á ungmennaþingi UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði.
Lagt fram til kynningar
Ungmennaráð Ungmennafélag Íslands stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa dagana 18.-20. september 2026 í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði.

Ráðstefnan er vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára til að staldra við, efla sjálft sig og tengjast öðru fólki á svipuðu reki í öruggu og styðjandi umhverfi án þess að þurfa að tilheyra ákveðnu félagi eða hópi.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er: Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst. Hún vísar til þess hvernig við getum eflt andlega, líkamlega og félagslega heilsu okkar í heimi þar sem áreiti, hraði og skjánotkun hafa sífellt meiri áhrif á daglegt líf.

Á ráðstefnunni fá þátttakendur tækifæri til að staldra við, skoða eigin líðan og átta sig á því hvað nærir þau og hvað dregur úr orku. Í gegnum vinnustofur, samtal og samveru verður unnið með sjálfsmynd, lífsstíl og tengsl - bæði í stafrænum heimi og utan hans.
Markmið ráðstefnunnar er að styrkja ungt fólk til að hafa áhrif á eigið líf og sitt nærsamfélag. Þátttakendur öðlast aukið sjálfstraust, læra að koma skoðunum sínum á framfæri og taka með sér reynslu og tengsl sem geta haft áhrif til framtíðar.

6.Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal

Málsnúmer 2510036Vakta málsnúmer

Rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal, kynning á fyrirhuguðu fyrirkomulagi.
Lagt fram til kynningar
Til stendur að bjóða út rekstur skíðasvæðisins og fór formaður yfir helstu atriði er það varðar.

Fundi slitið - kl. 18:30.