Upphaf skólastarfs grunnskólans

Málsnúmer 2608018

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 163. fundur - 17.08.2026

Guðrún Unnsteinsdóttir mætti á fundinn og fór yfir upphaf skólaársins.
Lagt fram til kynningar
Guðrún Unnsteinsdóttir, skólastjóri, mætti á fund nefndarinnar og fór yfir upphaf skólastarfsins. Nefndin óskar Guðrúnu til hamingju og býður hana velkomna til starfa sem skólastjóra.

Nemendur skólans eru 214 og skiptast nánast jafnt á milli skólahúsanna. Sautján nýnemar eru í 1. bekk. Skólasetning verður 24. ágúst kl. 10-11 á yngra stigi og kl. 13-14 á eldra stigi. 1. bekkingar verða boðaðir sérstaklega.

Helsta verkefnið nú í upphafi skólaársins er að koma öllum gögnum inn í nýtt kerfi, Námfús í stað Mentor og ljóst að kennarar þurfa tíma til að læra á það.

Skipa þarf innleiðingarteymi vegna innleiðingar á nýju námsmati sem hefst í haust samkvæmt ákvörðun mennta- og barnamálaráðherra.

Heillaspor verður innleitt í skólastarfið í vetur og mun Guðrún, ásamt fleira fólki úr skólanum, vera í innleiðingarhópi en af hálfu skólaskrifstofunnar halda Ásdís, deildarstjóri og Helga, þroskaþjálfi, utan um starfið.

Nemendur 7. bekkjar fara í skólabúðir á Reykjum í næstu viku.

Guðrún fór yfir niðurstöður könnunar vegna skólabyrjunar sem er almennt jákvæð. Skólinn hyggst reyna að mæta nokkrum athugasemdum strax í vetur sem verða kynntar von bráðar.

Nefndarmenn hyggjast heimsækja bæði skólahúsin á næstunni og fela starfsmanni og skólastjóra að finna hentugan tíma.