Upphaf leikskólastarfs

Málsnúmer 2608019

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 163. fundur - 17.08.2026

Kristín María Karlsdóttir, leikskólastjóri mætir á fundinn og fer yfir upphaf leikskólans eftir sumarfrí.
Lagt fram til kynningar
Kristín María Karlsdóttir,leikskólastjóri, fer yfir skólabyrjun leikskólans. 108 börn eru í leikskóla Fjallabyggðar. Elsti hópurinn í leikskólanum í Ólafsfirði hefur aðsetur á Tröllahóli sem er í nýbyggingunni. Á Leikhólum er flæði í morgunmat sem hefur gengið vel. Bæta þarf starfsmannaaðstöðu þar enda mjög lítil.

Starfsmannamál: Búið er að ráða í allar stöður, á Leikhólum eru 14 stöður en 18 starfsmenn á Leikskálum eru 15 stöðugildi en 17 starfsmenn. Þrír starfsmenn eru í veikindaleyfi en koma vonandi til starfa fljótlega.

23 börn nýta sér styttri vistun, aðeins þrjú af þeim sem nýta sér nýja fyrirkomulagið, að vera 30 tíma í leikskólanum. þ.e. frí í einn dag í viku. Átta foreldrar eru að nýta sér afslátt af leikskólagjöldum í gegnum tekjutenginguna sem er frá 25%-75%.

Breyting hefur orðið á vistunartíma sem er orðin sveigjanlegri en var og er það til að koma til móts við athugasemdir sem komu fram við skoðanakönnunina sem gerð var í vor á meðal foreldra.

Verið er að gera breytingar á Leikskálum, flæði er í matmálstímum hjá þrem elstu árgöngum, matstofa á ganginum þar sem þau koma saman og borða, morgunmat, hádegismat og hressingu, hluti í einu og skammta sér sjálf og fara svo inn á deild þegar þau eru búin að borða og næstu koma fram. Fyrsta vikan lofar mjög góðu.

Búið er að skipuleggja svæði á göngunum með ýmsu dóti og börnin blandast af deildum og leika saman. Ekki þarf að taka saman allt eftir daginn eins og verið hefur heldur er hægt að ganga að leiksvæðunum næsta dag.

Verið er að vinna að nýjum námsvísi með aðstoð Ásgarðs, ráðgjafa í skólaþjónustu, sem verður kynntur í september. Áhersla er lögð á þemavinnu. Einn starfsmaður verður m.a. með söngstund fyrir hverja deild í hverri viku.

Nefndarmenn óska eftir að koma í heimsókn og fela starfsmanni og leikskólastjóra að finna hentugan tíma.