Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

67. fundur 04. febrúar 2019 kl. 16:30 - 17:45 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Gauti Már Rúnarsson aðalmaður, D lista
  • Diljá Helgadóttir aðalmaður, H lista
  • Ólína Ýr Jóakimsdóttir varamaður, I lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála
Hólmar Hákon Óðinsson boðaði forföll og varamaður hans einnig.
Guðrún Linda Rafnsdóttir boðaði forföll og Ólína Ýr Jóakimsdóttir sat fundinn í hennar stað.

1.Styrkur til fyrirlestra og námskeiða

Málsnúmer 1901078Vakta málsnúmer

Á síðasta fundi nefndarinnar var bókað að boða Þórarinn Hannesson á næsta fund nefndarinnar með hugmyndir að útfærslu á fræðsluerindum sem fræðslu- og frístundanefnd styrkti að upphæð kr. 80.000. Þórarinn Hannesson mætti á fundinn og kynnti hugmyndir sínar að fræðsluerindum fyrir yngri kynslóðina. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Þórarni fyrir komuna og leggur til að fræðsla verði sniðin að miðstigi grunnskólans ásamt unglingum í félagsmiðstöðinni Neon. Fræðslu- og frístundanefnd felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að vera í sambandi við Þórarinn og leggja hugmyndir að fræðslu og tímasetningum fyrir næsta fund nefndarinnar.

2.Málefni Leikskóla Fjallabyggðar - stjórnendaráðgjöf

Málsnúmer 1711027Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sátu þær Olga Gísladóttir leikskólastjóri og Fanney Jónsdóttir fulltrúi starfsmanna.

Olga Gísladóttir og Kristín María Hlökk Karlsdóttir skólastjórnendur leikskólans luku í síðustu viku ríflega 10 mánaða námi í stjórnendaþjálfun. Stjórnendaþjálfun þessi ber nafnið Effective Leadership Development eða Árangursrík stjórnun frá Leadership Management International. Kristján Már Magnússon sálfræðingur frá Reyni-ráðgjafastofu stýrði þjálfuninni. Aðdragandi verkefnissins var tillaga fræðslu- og frístundanefndar í október 2017 um að farið yrði í vinnu við eflingu starfsanda og ráðgjöf til stjórnenda leikskólans eftir vísbendingar úr sjálfsmati skólans um að viðbragða væri þörf. Í kjölfarið var samið við Reyni ráðgjafastofu um áðurgreinda ráðgjöf og stjórnendaþjálfun. Í upphafi vinnunnar voru tekin viðtöl við starfsmenn leikskólans og samantekt úr niðurstöðum viðtalanna var kynnt á starfsmannafundi. Niðurstöður þessara viðtala voru einnig notaðar sem efniviður í stjórnendaþjálfuninni og námið þannig tengt verkefnum daglegs starfs í leikskólanum.
Olga kynnti upplifun sína og ávinning af þjálfuninni fyrir fundarmönnum.

3.Ósk um aukinn sérstuðning í Leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1902015Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Olga Gísladóttir leikskólastjóri og Fanney Jónsdóttir fulltrúi starfsmanna leikskólans.
Leikskólastjóri óskar eftir viðbótar 75% stöðuhlutfalli við Leikskóla Fjallabyggðar vegna sérstuðnings við börn í skólanum.
Fræðslu- og frístundanefnd vísar erindinu til bæjarráðs.

4.Kynning á hlutverki og skipun fagráðs eineltismála í grunn- og framhaldsskólum

Málsnúmer 1901115Vakta málsnúmer

Lagt fyrir bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um hlutverk og skipun fagráðs eineltismála í grunn og framhaldsskólum. Hlutverk fagráðsins er að veita skólasamfélaginu stuðning vegna eineltismála með almennri ráðgjöf, leiðbeiningum og upplýsingagjöf.

5.Eftirfylgni með kennslustundum í list- og verkgreinum.

Málsnúmer 1901050Vakta málsnúmer

Mennta- og menningarmálaráðuneytið ásamt Hagstofu Íslands tóku saman á árinu 2016 upplýsingar um kennslumínútufjölda í list- og verkgreinum. Í ljós kom að í Grunnskóla Fjallabyggðar vantaði upp á mínútufjölda í þessum námsgreinum á unglingastigi. Menntamálastofnun kallar nú eftir upplýsingum um fjölda mínútna á viku í list- og verkgreinum hjá yngsta-, mið- og unglingastigi Grunnskóla Fjallabyggðar. Svarbréf deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála til Menntamálastofnunnar lagt fram til kynningar. Þar kemur fram að list- og verkgreinakennsla í 1.-4.bekk er 900 mínútur á viku samtals og viðmiðið er 900 mínútur. Í 5.-7.bekk er list- og verkgreinakennsla 810 mínútur samtals en viðmiðið er 840 mín. Á unglingastigi er list- og verkgreinakennsla 390 mínútur en viðmiðið er 340 mínútur.

Fundi slitið - kl. 17:45.