Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

64. fundur 10. desember 2018 kl. 16:30 - 18:30 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Hólmar Hákon Óðinsson varaformaður I lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir aðalmaður, I lista
  • María Lillý Jónsdóttir varamaður, D lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála
Diljá Helgadóttir boðaði forföll og varamaður hennar einnig.
Gauti Már Rúnarsson boðaði forföll og María Lillý Jónsdóttir sat fundinn í hans stað.

1.Sérfræðiráðgjöf við Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1811092Vakta málsnúmer

Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar og Helena Hannesdóttir Asperlund sátu undir þessum lið.
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt að ganga til samninga við Tröppu ráðgjöf um sérfræðiráðgjöf í Grunnskóla Fjallabyggðar. Um er að ræða ráðgjöf í formi sérfræðiaðstoðar við endurskoðun á sýn og stefnu skólans með það fyrir augum að í skólanámskrá og í daglegu starfi skólans endurspeglist starf í anda nýrrar fræðslustefnu Fjallabyggðar, núgildandi aðalnámskrár og ríkjandi menntastefnu í landinu, menntun án aðgreiningar. Núgildandi sýn og stefna skólans er frá fyrstu árum Grunnskóla Fjallabyggðar en skólanámskrá hefur verið endurskoðuð. Vinnan hefst í byrjun næsta árs með kynningarfundum fyrir Fræðslu- og frístundanefnd, bæjarfulltrúa, starfsfólk grunnskólans, nemendur og foreldra.

2.Samningar um afslátt af líkamsræktarkortum

Málsnúmer 1811079Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðvar sat undir þessum lið.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til við bæjarráð að útkallssveit björgunarsveitanna Tinds og Stráka, að hámarki 6 einstaklingar í hvorri sveit fái árskort í líkamsræktarstöðvum íþróttamiðstöðvanna með 50% afslætti. Deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála er falið að útbúa reglur og umsóknareyðublað og birta á heimasíðu sveitarfélagsins.

3.Reglur um úthlutun frítíma í íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar

Málsnúmer 1808040Vakta málsnúmer

Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðvar sat undir þessum lið.
Á 59. fundi fræðslu- og frístundanefndar voru lagðar fram endurskoðaðar reglur um úthlutun frítíma í íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar. Fræðslu- og frístundanefnd vísaði endurskoðuðum reglum til UÍF til umsagnar. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar UÍF fyrir innsendar athugasemdir. Deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála falið að uppfæra reglur í samræmi við umræðu fundarins og vísa þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

4.Erindi frá UÍF. Frístundaakstur milli bæjarkjarnanna

Málsnúmer 1808042Vakta málsnúmer

Á 58. fundi fræðslu- og frístundanefndar var tekið fyrir erindi frá UÍF um auknar rútuferðir milli bæjarkjarnanna til að auðvelda iðkendum íþróttafélaga að komast heim að loknum æfingum. Óskað var eftir að boðið yrði upp á rútuferð frá Siglufirði kl 17.00 og frá Ólafsfirði kl.17.30. Við nánari skoðun á tímatöflu íþróttafélaganna kom í ljós að þörf er fyrir ferðir á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17.15 frá Siglufirði og 17:50 frá Ólafsfirði. Fræðslu- og frístundanefnd vísaði erindinu til bæjarráðs sem samþykkti aukinn frístundaakstur til reynslu fram að áramótum. Í ljós kom að lítil sem engin nýting var á ferðunum og voru þær lagðar niður frá og með 15. nóvember sl.

Fundi slitið - kl. 18:30.