Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

48. fundur 05. desember 2017 kl. 17:00 - 19:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Hjördís Hanna Hjörleifsdóttir aðalmaður, D lista
  • Sæbjörg Ágústsdóttir varaformaður, S lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Helga Hermannsdóttir aðalmaður, S lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála
Rósa Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi boðaði forföll og varamaður hennar einnig.

1.Umsókn um styrk vegna frístundamála. Minigolfvöllur í Ólafsfirði.

Málsnúmer 1711088Vakta málsnúmer

Kristján Hauksson var boðaður á fund Fræðslu- og frístundanefndar til að fara yfir hugmynd sína og styrkumsókn fyrir mínígolfvöll í Ólafsfirði.

2.Úthlutun frítíma í Íþróttamannvirkjum Fjallabyggðar veturinn 2017-2018

Málsnúmer 1708069Vakta málsnúmer

Á fundinn mættu Þórarinn Hannesson formaður Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar og Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir starfsmaður sambandsins. Fræðslu- og frístundanefnd fór yfir bókun frá fundi nefndarinnar þann 1. nóvember s.l. og ákvörðun sína um að reglur um húsaleigustyrki Fjallabyggðar til aðildafélaga UÍF verði óbreyttar. Ábendingar komu fram um orðalag viðauka við gjaldskrá íþróttamiðstöðvar og leggur Fræðslu- og frístundanefnd til breytingar á orðalagi.

3.Frístundastyrkir Fjallabyggðar - reglur

Málsnúmer 1611062Vakta málsnúmer

Endurskoðun reglna um Frístundastyrki. Uppfæra þarf reglurnar með tilliti til þeirra breytinga sem verða á styrknum fyrir árið 2018. Ákveðið hefur verið að styrkupphæðin hækki í kr. 30.000 og gefnar verði út sex ávísanir, hver að upphæð kr. 5000.

4.Innsent erindi vegna nýtingu frístundaávísana

Málsnúmer 1711071Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd hefur borist erindi þar sem óskað er eftir leyfi til að nýta frístundastyrk unglings í öðru sveitarfélagi þar sem viðkomandi stundar íþróttaæfingar með íþróttafélagi utan Fjallabyggðar.
Fræðslu- og frístundanefnd hafnar erindinu.

5.Símenntunaráætlun Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1711086Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Jónína Magnúsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar.

Farið yfir Símenntunaráætlun skólaársins 2017-2018. Á þessu skólaári eru lagðar áherslur á námskeið í nýju vefviðmóti Mentor og námsmati með hæfniviðmiðum samkvæmt Aðalnámskrá Grunnskóla svo og nýtingu snjalltækja í námi og kennslu.

6.Niðurstöður samræmdra prófa 2017

Málsnúmer 1711080Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Jónína Magnúsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar.
Skólastjóri fór yfir niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4. og 7.bekk sem lögð voru fyrir í september síðastliðnum.

7.Niðurstöður nemendakönnunar Skólapúlsins haust 2017

Málsnúmer 1711085Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Jónína Magnúsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar.
Skólastjóri fór yfir niðurstöður nemendakönnunar Skólapúlsins sem lögð var fyrir nemendur í 6.-10.bekk í október síðastliðnum. Niðurstöður verða aðgengilegar á heimasíðu grunnskólans.

8.Bréf frá foreldrum 2.bekkjar nóv. 2017

Málsnúmer 1711070Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Jónína Magnúsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar,.
Skólastjóri fór yfir bréf sem skólastjórnendum og skólayfirvöldum barst frá Óskari Þórðarsyni fyrir hönd foreldra 2.bekkjar í Grunnskóla Fjallabyggðar.
Í bréfinu lýsa foreldrar yfir áhyggjum sínum af líðan og námsaðstæðum barna sinna í fjölmennum bekk. Í bréfinu eru settar fram fjórar spurningar sem óskað er svara við.
Skólastjóri og deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála, fyrir hönd Fræðslu- og frístundanefndar, munu svara spurningum foreldra. Fullur vilji bæjaryfirvalda hefur ávalt verið til að mæta því skipulagi skólastarfs sem skólastjórnendur telja best hverju sinni.

9.Samþætting á skóla og frístundastarfi

Málsnúmer 1708013Vakta málsnúmer

Deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála fór yfir hugmyndir að viðfangsefnum í Frístund eftir áramót. Kynningarefni verður sent til foreldra í næstu viku og skráning í Frístund fer fram fyrir jólafrí grunnskólans. Einnig voru lagðar fram tölulegar upplýsingar um þátttöku nemenda í Frístund.

Fundi slitið - kl. 19:30.