Bæjarstjórn Fjallabyggðar

270. fundur 28. apríl 2026 kl. 17:00 - 19:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir forseti
  • Tómas Atli Einarsson 2. varaforseti
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
  • Guðjón M. Ólafsson 1. varaforseti
  • Sæbjörg Ágústsdóttir aðalfulltrúi
  • Þorgeir Bjarnason aðalfulltrúi
  • Arnar Þór Stefánsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu þess efnis að taka til afgreiðslu fundargerð bæjarráðs frá 27.apríl og fundargerð velferðarnefndar frá 24.apríl.

Samþykkt með 7 atkvæðum að taka báðar fundargerðir til afgreiðslu.

1.Bæjarráð Fjallabyggðar - 914. fundur - 30. mars 2026.

Málsnúmer 2603010FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

2.Bæjarráð Fjallabyggðar - 915. fundur - 9 apríl 2026

Málsnúmer 2604001FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 8 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Bæjarráð Fjallabyggðar - 916. fundur - 16. apríl 2026

Málsnúmer 2604005FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tóku Arnar Þór Stefánsson, S.Guðrún Hauksdóttir og Helgi Jóhannsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Bæjarráð Fjallabyggðar - 917. fundur - 27. apríl 2026

Málsnúmer 2604011FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 9 liðum og er tekin fyrir í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tóku Helgi Jóhannsson, S.Guðrún Hauksdóttir, Guðjón M. Ólafsson, Arnar Þór Stefánsson og Tómas Atli Einarsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Ungmennaráð Fjallabyggðar - 46. fundur - 18. mars 2026

Málsnúmer 2603009FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 5 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.

6.Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 159. fundur - 23. mars 2026

Málsnúmer 2603005FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Í fundargerðinni er tilkynnt um uppsögn skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar á starfi sínu. Bæjarstjórn Fjallabyggðar þakkar Ásu Björk Stefánsdóttur fyrir vel unnin störf fyrir Fjallabyggð undanfarin ár og óskar henni velfarnaðar í komandi verkefnum.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 160. fundur - 20. apríl 2026

Málsnúmer 2604007FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 9 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Í fundargerðinni er tilkynnt um uppsögn skólastjóra Tónlistarskólans á Tröllaskaga á starfi sínu. Bæjarstjórn Fjallabyggðar þakkar Magnúsi G. Ólafssyni fyrir vel unnin störf fyrir Fjallabyggð undanfarin ár og áratugi og óskar honum velfarnaðar í komandi verkefnum.

Til máls tóku Helgi Jóhannsson, S.Guðrún Hauksdóttir og Guðjón M. Ólafsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd Fjallabyggðar - 9. fundur - 15. apríl

Málsnúmer 2604003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 5 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tók S.Guðrún Hauksdóttir.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 332. fundur - 21. apríl 2026

Málsnúmer 2604008FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 1, 2, 3 og 8 sem bornir eru upp sérstaklega.
Samþykkt
Til máls tóku Arnar Þór Stefánsson og Helgi Jóhannsson.

Liðir 1, 2, 3 og 8 samþykktir með 7 atkvæðum.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 1, 2, 3 og 8 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 332. fundur - 21. apríl 2026 Nefndin leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu á vinnslustigi og að tillagan verði kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 332. fundur - 21. apríl 2026 Nefndin leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu á vinnslustigi og að tillagan verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr., samhliða kynningu aðalskipulagsbreytingar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum
  • Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 332. fundur - 21. apríl 2026 Í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 leggur nefndin til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og leggur fram meðfylgjandi rökstuðning.
    HMS gerir eftirfarandi athugasemdir vegna samþykktar deiliskipulagsins:

    1. Engin sérákvæði eru skilgreind í aðalskipulagi fyrir íþróttasvæði 326 ÍÞ, en hins vegar er núverandi notkun svæðisins lýst sem knattspyrnuvelli og stúku. Ekki er til staðar heimild til byggingar 3.700 m² knatthallar.

    ÍÞ (íþróttasvæði) í skipulagsreglugerð er skilgreint sem svæði fyrir landfreka íþróttaaðstöðu og stærri íþróttamiðstöðvar, sem styður almennt að knatthöllin geti verið innan landnotkunarflokksins. Sett hafa verið fram markmið í Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 um áframhaldandi uppbyggingu íþróttaaðstöðu í Ólafsfirði með áherslu á knattspyrnu. Uppbygging knatthallar skv. breyttu deiliskipulagi styður við þá stefnu sveitarfélagsins.
    Í gildandi aðalskipulagi kemur jafnframt fram að nánari útfærsla fari fram á deiliskipulagsstigi þegar sérákvæði segja ekki til um nýtingu og byggðamynstur. Nefndin telur því ekki þörf á breytingu aðalskipulags vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar knatthallar þar sem gildandi stefna aðalskipulags býður upp á svigrúm til uppbyggingar slíks mannvirkis.

    2. Gera þarf breytingu á aðalskipulagi samhliða deiliskipulagsbreytingunni þar sem m.a. kemur fram heimild fyrir knatthöll og heimilað hámarksbyggingarmagn í ákvæðum og fleira eftir því sem við á.

    Sjá svar við lið nr.1.

    3. Þar sem mörk skipulagssvæðis ná nú utan um stærra svæði, þ.m.t. skólahúsnæði Menntaskólans við Tröllaskaga, þarf að fjalla um það í breyttu deiliskipulagi og gera skýra grein fyrir þeim mannvirkjum sem fyrir eru og áformum um stækkun eða breytingu eftir því sem við á.

    Í kaflanum "Breyting á uppdrætti" er fjallað um lýsingu á stækkun skipulagssvæðisins. Fjallað er um mannvirki sem falla innan stækkaðs svæðis, þar á meðal húsnæði menntaskólans. Ekki er fyrirhuguð stækkun eða breyting á mannvirkinu en fjallað er um óverulega breytingu lóðarmarka við skólann. Komið verður fyrir tengivegi í gegnum bílastæði sem er utan lóðar menntaskólans til að tryggja aðkomu með hringakstri við fyrirhugaða knatthöll, tenging sem er í dag notuð fyrir skólarútu grunnskólans. Þar sem ekki eru lagðar til breytingar á þeim mannvirkjum sem fyrir eru á svæðinu umfram það sem kemur fram í gildandi deiliskipulagi, er ekki talin þörf á frekari umfjöllun um þau.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum
  • Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 332. fundur - 21. apríl 2026 Erindi samþykkt. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum

10.Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 35. fundur - 21. apríl 2026

Málsnúmer 2604009FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í einum lið
Samþykkt
Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.

11.Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 24. apríl 2026

Málsnúmer 2604010FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

12.Ársreikningur Fjallabyggðar 2025

Málsnúmer 2601019Vakta málsnúmer

Ársreikningur Fjallabyggðar fyrir árið 2025 lagður fram til seinni umræðu. Ársreikningurinn samanstendur af upplýsingum um A-hluta annars vegar og hins vegar A- og B-hluta samantekinn. Í A-hluta er Aðalsjóður auk Eignasjóðs og Þjónustustöðvar. Í B-hluta eru Hafnarsjóður, Hornbrekka, Íbúðasjóður og Veitustofnun.
Samþykkt
Bæjarstjóri greindi frá helstu niðurstöðum og lykiltölum ársreiknings.

Til máls tóku S.Guðrún Hauksdóttir, Guðjón M. Ólafsson, Tómas Atli Einarsson, Helgi Jóhannsson og Arnar Þór Stefánsson.

Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum eftirfarandi bókun við afgreiðslu ársreiknings ársins 2025:

Samkvæmt framlögðum ársreikningi ársins 2025 er rekstrarniðurstaða ársins jákvæð um ríflega 240 milljónir króna að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða þrátt fyrir að hækkun lífeyrisskuldbindinga sem færð er til reksturs sé um 281 milljón króna á árinu. Rekstrargjöld ársins eru í jafnvægi og í samræmi við áætlanir og hlutfall launakostnaðar lækkar úr tæpum 57% af rekstrartekjum í 50%.

Veltufé frá rekstri, þ.e. það fjármagn sem stendur eftir úr rekstri sveitarfélagsins og hægt er að nýta m.a. til framkvæmda, er á árinu 2025 771 milljón króna og hækkar um 423 milljónir á milli ára sem er ánægjuleg niðurstaða og gefur aukna möguleika á fjárfestingum og framkvæmdum til lengri tíma. Hlutfall veltufjár frá rekstri af heildartekjum tvöfaldast á milli áranna 2024 og 2025 eða úr 7,9% í 15,3%.

Niðurstaða ársreiknings og þróun reksturs á árinu 2025 sýna ábyrga fjármálastjórnun á árinu og gert er ráð fyrir sömu þróun í áætlun fyrir árið 2026."

Framlagður ársreikningur Fjallabyggðar 2025 borinn upp til afgreiðslu og samþykktur með 7 atkvæðum og undirrita kjörnir fulltrúar ársreikninginn því til staðfestingar ásamt ábyrgðar- og skuldbindingayfirliti.


13.Málefni Leyningsáss ses

Málsnúmer 2402023Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi ásamt fylgigögnum frá Finni Ingva Kristinssyni þar sem óskað er eftir efnislegri afstöðu bæjarstjórnar og leiðréttingu á bókun A-lista frá 268.fundi bæjarstjórnar vegna málefna Leyningsáss ses.
Lagt fram til kynningar
Til máls tóku S.Guðrún Hauksdóttir, Guðjón M. Ólafsson og Helgi Jóhannsson.

Fulltrúar D-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

“Á fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar þann 26. febrúar s.l. lögðu fulltrúar A-lista fram bókun í tengslum við lið 1 í fundargerð bæjarráðs frá 2.febrúar er varðaði málefni Leyningsáss ses. Bæjarfulltrúum er almennt heimilt að leggja fram bókanir í bæjarstjórn án þess að einstakir fulltrúar annarra framboða taki sérstaklega afstöðu til slíkra bókana.
Bókunin er lögð fram af bæjarfulltrúum A-lista og tóku fulltrúar D-lista í bæjarstjórn ekki undir bókunina þá og hefur sú afstaða ekki breyst.“

Fulltrúar A-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

„Bókun A-lista á fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar þann 26.febrúar s.l. í tengslum við málefni Leyningsáss ses er ætlað að varpa ljósi á þá stöðu er upp var komin í málefnum skíðasvæðisins í Skarðsdal á Siglufirði og þar með uppfylla væntingar um upplýsingagjöf til bæjarbúa, sérstaklega er varðar fjárveitingar er ekki var gert ráð fyrir í upphaflegum fjárfestingaáætlun síðustu ára.
Bæjarfulltrúar A-lista telja það skyldu sína að upplýsa um slíka stöðu og meta þau gögn sem fyrir liggja með þeim hætti er fram koma í umræddri bókun. Íbúar og aðrir aðilar geta að sjálfsögðu haft aðrar skoðanir eða mismunandi túlkanir á þeim gögnum og er þeim frjálst að koma þeim skoðunum sínum og túlkunum á framfæri. Að sama skapi er bæjarfulltrúum frjálst að bóka um tiltekin málefni eftir bestu samvisku og þeim upplýsingum er fyrir liggja líkt og fulltrúar A-lista hafa þegar gert.“

Fulltrúar H-lista óska eftir fundarhléi kl 18:49 og var fundi haldið áfram kl. 18:58.

Fulltrúar H-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Sú bókun frá A - listanum sem málið snýst um hér er að okkar áliti fín yfirferð yfir endalok Leyningsáss þó alltaf megi deila um orðanotkun"







Fundi slitið - kl. 19:00.