Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 160. fundur - 20. apríl 2026

Málsnúmer 2604007F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 270. fundur - 28.04.2026

Fundargerðin er í 9 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Í fundargerðinni er tilkynnt um uppsögn skólastjóra Tónlistarskólans á Tröllaskaga á starfi sínu. Bæjarstjórn Fjallabyggðar þakkar Magnúsi G. Ólafssyni fyrir vel unnin störf fyrir Fjallabyggð undanfarin ár og áratugi og óskar honum velfarnaðar í komandi verkefnum.

Til máls tóku Helgi Jóhannsson, S.Guðrún Hauksdóttir og Guðjón M. Ólafsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.