Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

332. fundur 21. apríl 2026 kl. 16:00 - 18:00 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Arnar Þór Stefánsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Þorgeir Bjarnason aðalm.
  • Áslaug Inga Barðadóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Pálmi Blængsson verkefnastjóri
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Davíð Sævarsson Sviðsstjóri tæknisviðs

1.Leirutangi - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 2604033Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsagnir sem bárust vegna skipulagslýsingar sem kynnt var frá 5. mars - 2. apríl 2026. Einnig lögð fram vinnslutillaga vegna breytinga á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 fyrir Leirutanga.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu á vinnslustigi og að tillagan verði kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Deiliskipulag - Leirutangi

Málsnúmer 2107019Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsagnir sem bárust vegna skipulagslýsingar sem kynnt var frá 5. mars - 2. apríl 2026. Einnig lögð fram vinnslutillaga vegna endurskoðunar deiliskipulags Leirutanga.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu á vinnslustigi og að tillagan verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr., samhliða kynningu aðalskipulagsbreytingar.

3.Breyting á deiliskipulagi íþróttasvæðis á Ólafsfirði

Málsnúmer 2510044Vakta málsnúmer

Lögð fram yfirferð HMS vegna deiliskipulagsbreytingar fyrir knatthöll í Ólafsfirði þar sem gerð er athugasemd við gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 leggur nefndin til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og leggur fram meðfylgjandi rökstuðning.
HMS gerir eftirfarandi athugasemdir vegna samþykktar deiliskipulagsins:

1. Engin sérákvæði eru skilgreind í aðalskipulagi fyrir íþróttasvæði 326 ÍÞ, en hins vegar er núverandi notkun svæðisins lýst sem knattspyrnuvelli og stúku. Ekki er til staðar heimild til byggingar 3.700 m² knatthallar.

ÍÞ (íþróttasvæði) í skipulagsreglugerð er skilgreint sem svæði fyrir landfreka íþróttaaðstöðu og stærri íþróttamiðstöðvar, sem styður almennt að knatthöllin geti verið innan landnotkunarflokksins. Sett hafa verið fram markmið í Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 um áframhaldandi uppbyggingu íþróttaaðstöðu í Ólafsfirði með áherslu á knattspyrnu. Uppbygging knatthallar skv. breyttu deiliskipulagi styður við þá stefnu sveitarfélagsins.
Í gildandi aðalskipulagi kemur jafnframt fram að nánari útfærsla fari fram á deiliskipulagsstigi þegar sérákvæði segja ekki til um nýtingu og byggðamynstur. Nefndin telur því ekki þörf á breytingu aðalskipulags vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar knatthallar þar sem gildandi stefna aðalskipulags býður upp á svigrúm til uppbyggingar slíks mannvirkis.

2. Gera þarf breytingu á aðalskipulagi samhliða deiliskipulagsbreytingunni þar sem m.a. kemur fram heimild fyrir knatthöll og heimilað hámarksbyggingarmagn í ákvæðum og fleira eftir því sem við á.

Sjá svar við lið nr.1.

3. Þar sem mörk skipulagssvæðis ná nú utan um stærra svæði, þ.m.t. skólahúsnæði Menntaskólans við Tröllaskaga, þarf að fjalla um það í breyttu deiliskipulagi og gera skýra grein fyrir þeim mannvirkjum sem fyrir eru og áformum um stækkun eða breytingu eftir því sem við á.

Í kaflanum "Breyting á uppdrætti" er fjallað um lýsingu á stækkun skipulagssvæðisins. Fjallað er um mannvirki sem falla innan stækkaðs svæðis, þar á meðal húsnæði menntaskólans. Ekki er fyrirhuguð stækkun eða breyting á mannvirkinu en fjallað er um óverulega breytingu lóðarmarka við skólann. Komið verður fyrir tengivegi í gegnum bílastæði sem er utan lóðar menntaskólans til að tryggja aðkomu með hringakstri við fyrirhugaða knatthöll, tenging sem er í dag notuð fyrir skólarútu grunnskólans. Þar sem ekki eru lagðar til breytingar á þeim mannvirkjum sem fyrir eru á svæðinu umfram það sem kemur fram í gildandi deiliskipulagi, er ekki talin þörf á frekari umfjöllun um þau.

4.Hlíðarvegur 23A - umsókn um byggingarheimild eða -leyfi

Málsnúmer 2604032Vakta málsnúmer

Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og lagfæringum að Hlíðarvegi 23A, Ólafsfirði
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin samþykkir að grenndarkynna byggingaráformin aðliggjandi lóðarhöfum í samræmi við 44.gr skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Suðurgata 43 - Flokkur 2

Málsnúmer 2603038Vakta málsnúmer

Umsókn um leyfi fyrir svölum á efri hæð á Suðurgötu 43 Siglufirði
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Í ljósi þess að húsið hefur varðveislugildi vegna byggingarlistar, menningarsögu og umhverfis skv. húsaskráningu Siglufjarðar frá 2017 óskar nefndin eftir að lögð verði fram umsögn Minjastofnunar.

6.Merkjalýsing Ægisgata 13-15

Málsnúmer 2603046Vakta málsnúmer

Ósk um breytingu á lóðamörkum lóða við Ægisgötu 13 og Ægisgötu 15 í Ólafsfirði til samræmis við deiliskipulag íþróttasvæðis í Ólafsfirði.
Samþykkt
Erindi samþykkt.

7.Suðurgata 26 - Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi

Málsnúmer 2603049Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Suðurgötu 26. Einnig lögð fram drög að merkjalýsingu sem er fylgiskjal samningsins.
Samþykkt
Erindi samþykkt.

8.Bakkabyggð 16 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2604016Vakta málsnúmer

María Petra Björnsdóttir og Halldór Ingvar Guðmundsson sækja um lóðina við Bakkabyggð 16 í Ólafsfirði.
Samþykkt
Erindi samþykkt.

9.Aðalgata 2 - Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi

Málsnúmer 2604028Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Aðalgötu 2 í Ólafsfirði. Einnig lögð fram drög að merkjalýsingu sem er fylgiskjal samningsins.
Samþykkt
Erindi samþykkt.

10.Ályktun samþykkt á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands 2026

Málsnúmer 2604005Vakta málsnúmer

Fyrir liggur ályktun frá Skógræktarfélag Íslands þar sem félagið lýsir yfir þungum áhyggjum og mótmælir fyrirhuguðum breytingum á viðmiðum um tilkynningarskyldu skógræktar.
Lagt fram til kynningar
Erindi kynnt.

Fundi slitið - kl. 18:00.