Bæjarstjórn Fjallabyggðar

268. fundur 26. febrúar 2026 kl. 17:00 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir forseti
  • Tómas Atli Einarsson 2. varaforseti
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
  • Guðjón M. Ólafsson 1. varaforseti
  • Sæbjörg Ágústsdóttir aðalfulltrúi
  • Þorgeir Bjarnason aðalfulltrúi
  • Arnar Þór Stefánsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu þess efnis að taka til afgreiðslu fundargerð bæjarráðs frá 26.febrúar.

Samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum að taka til afgreiðslu fundargerð bæjarráðs frá 26. febrúar.

Bæjarstjóri greindi frá fundargerðum bæjarráðs sem teknar eru fyrir á fundinum.

1.Bæjarráð Fjallabyggðar - 904. fundur - 15. janúar 2026

Málsnúmer 2601003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 8 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

2.Bæjarráð Fjallabyggðar - 905. fundur - 22. janúar 2026

Málsnúmer 2601010FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Helgi Jóhannsson víkur af fundi við afgreiðslu liðar 2 í fundargerðinni.

Liður 2 í fundargerðinni samþykktur með 6 atkvæðum.

Fundargerðin í heild að undanskildum lið 2 samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Bæjarráð Fjallabyggðar - 906. fundur - 2. febrúar 2025

Málsnúmer 2601012FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 8 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 1 sem borinn er upp sér.
Samþykkt
Til máls tóku Guðjón M Ólafsson, Helgi Jóhannsson, Tómas A Einarsson og S.Guðrún Hauksdóttir.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 1 samþykkt með 7 atkvæðum.




  • 3.1 2402023 Málefni Leyningsáss ses
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 906. fundur - 2. febrúar 2025 Þar sem slitum á félaginu er nú lokið felur bæjarráð bæjarstjóra að uppfæra eignalista Fjallabyggðar í samráði við endurskoðendur og gera tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 í samræmi við þá eignabreytingu. Bókun fundar Bæjarfulltrúar A lista leggja fram eftirfarandi bókun við afgreiðslu á lið 1 í fundargerðinni:

    "Leyningsás ses. var stofnuð á árinu 2012 af Rauðku ehf. og Fjallabyggð með eftirfarandi tilgang, sem lesa má um í stofnsamþykktum félagsins.
    -
    Að byggja upp skíðasvæði Fjallabyggðar á Siglufirði til alhliða vetraríþrótta
    -
    Skapa æfingaðastöðu fyrir keppnisfólk
    -
    Byggja nýjan skíðaskála
    -
    Færa diskalyftu (neðstu lyftu) af snjóflóðasvæði og e.t.v. breyta legu neðri hluta T-lyftu
    -
    Ráðast þarf í vegaframkvæmdir m.v. nýjan upphafsstað vegna flutnings á lyftu og útbúa bílastæði.
    -
    Að byggja upp nýja golfvöll í Hólsdal á Siglufirði ásamt því að tryggja golfskála á svæðinu.
    Sveitarfélagið lagði sjálfseignarstofnuninni til öll mannvirki og búnað sem voru fyrir hendi árið 2012 á skíðasvæði Fjallabyggðar á Siglufirði. Til viðbótar mannvirkjum sem voru fyrir hendi í Skarðsdal þá lagði Fjallabyggð fram annars vegar 15 milljónir vegna Bungulyftu og hins vegar 16 milljónir til uppgræðslu á þáverandi malarnámum í Hólsdal, sem ætlaðar voru til uppbyggingar nýjum golfvelli Leyningsáss í Hólsdal. Líkt og kveðið var á um í 4. gr. stofnsamþykktum Leyningsáss þá var aðkoma sveitarfélagsins afmörkuð við árlegt framlag til reksturs skíðasvæðisins til þess að mæta „skyldum sveitarfélagsins gagnvart íbúunum s.s. til aðgangs að skíðaskála, kostnað við lyftugjöld o.fl.“. Af gögnum málsins má ráða að ekki þótti ástæða til frekari aðkomu sveitarfélagsins að skíðasvæðinu í Skarðsdal enda annars vegar gert ráð fyrir framlagi meðstofnanda sjálfseignarstofnunarinnar að fjárhæð 295mkr til uppbyggingar skíðasvæðisins og hins vegar Ofanflóðasjóði vegna færslu svæðisins af snjóflóðasvæði. Rétt er að taka fram framangreindum 295mkr. (um 500 milljónir á verðlagi ársins 2026) var ekki ráðstafað í uppbyggingu á skíðasvæðinu í Skarðsdal líkt og til stóð í upphafi.

    Þann 14. maí 2024 barst bæjarráði Fjallabyggðar erindi frá stjórn Leyningsáss þar sem óskað var eftir fjárstuðningi vegna Skíðasvæðisins í Skarðsdal. Efnisinnihald bréfsins var neyðarkall frá stjórn félagsins í kjölfar mjög erfiðs vetrar í rekstri skíðasvæðisins. Rétt er að taka fram að þær aðkallandi aðstæður sem sköpuðust í Skarðsdal voru að stærstu leyti komnar til vegna snjóflóðs, sem féll á neðsta hluta svæðisins í janúar 2021. Á árinu 2023 tók ný stjórn við sjálfseignarstofnuninni og eignum þess.

    Á árinu 2023 hafði færsla hafist á svæðinu inn á núverandi starfssvæði skíðasvæðisins. Ljóst var frá upphafi m.v. erindi stjórnarinnar að færslan yrði kostnaðarsöm og fjárhagur sjálfseignarstofnunarinnar væri það bágborin að stofnunin, ein og sér, næði aldrei að standa undir þeim kostnaði sem þyrfti til að færsla svæðisins sem og markmiðin með stofnun sjálfseignarstofnunarinnar næðust.

    Til viðbótar kostnaði við færslu skíðasvæðisins út af snjóflóðasvæði voru tíunduð í bréfi stjórnarinnar mikill viðhaldskostnaður vegna bágborins ástands lyftubúnaðar. Var það mat stjórnarinnar að viðhaldi væri ábótavant bæði þegar kæmi að mannvirkjum sem og öðrum rekstrarbúnaði s.s. troðurum og öðrum vélbúnaði.

    Bæjarráð Fjallabyggðar, með stuðningi allra bæjarráðsfulltrúa, ákvað 7. júní 2024 að svara beiðni stjórnar Leyningsáss um fjárstuðning með því að skipa verkefnahóp tveggja bæjarfulltrúa og þáverandi deildarstjóra tæknideildar. Vann hópurinn náið með fulltrúum stjórnar Leyningsáss við gerð frumkostnaðarmats m.t.t. greinargerðar stjórnar Leyningsáss. Ljóst var á þessu stigi málsins að þeir fjármunir sem þurfti til þess að klára þau verkefni, sem fyrir lágu á skíðasvæðinu í Skarðsdal hlupu á tugum milljóna króna. Í ljósi rekstrarfyrirkomulags Leyningsáss og þeirrar staðreyndar að sveitarfélagið stóð ekki eitt að stofnun félagsins þá var leitað til meðstofnanda sveitarfélagsins og óskað eftir afstöðu meðstofnanda um hvort félagið hygðist leggja sjálfseignarstofnuninni til fjármagn í ljósi þeirrar stöðu sem upp var kominn.

    Þegar ljóst var að sveitarfélagið eitt þyrfti standa straum af þeim framkvæmdum, sem ráðast þurfti á skíðasvæðinu í Skarðsdal þá var það samhljóða afstaða allra kjörinna fulltrúa að sveitarfélagið og samfélagið allt þyrfti að stíga inn í verkefnið og axla ábyrgð vegna þess forsendubrests sem upp var kominn. Það var einnig afstaða allra stjórnarmanna í Leyningsási að klára þyrfti færslu svæðisins og tók stjórn félagsins þannig fullan þátt í verkefninu með því að skipa 2 fulltrúa í verkefnishóp sem hélt utan um þær framkvæmdir sem síðan var ráðist í. Niðurstaðan er samfélaginu okkar til sóma. Sérstaklega er vert að nefna þá aðila sem gáfu vinnu sína vegna töfrateppisins, þannig að okkar yngstu íbúar gætu með auðveldara móti tileinkað sér skíðaíþróttinni.

    Það að reka skíðasvæði á Íslandi er samfélagslegt verkefni, það er hinn blákaldi raunveruleiki okkar skíðasvæðis og annarra hér á landi. Ekki ber að líta svo á að þeir fjármunir, sem varið var til verkefnisins, séu glatað fé, þvert á móti eru þessir fjármunir fjárfesting í lífsgæðum. Sú aðstaða sem búið er að byggja upp er gríðarleg lyftistöng fyrir samfélagið í Fjallabyggð þ.m.t. rekstrar- og þjónustuaðila yfir vetrarmánuðina. Fjallabyggð er íþrótta- og skíðasamfélag, sem býr að því að fjölmargir aðilar leggja mikla vinnu á sig fyrir sjálfa sig, börnin sín og samfélagið allt. Það er mikilvægt að íbúar standi saman um uppbyggingu skíðaíþróttarinnar og í raun allra íþrótta og tómstunda. Þeim fylgja lífsgæði og samfélagslegur ábati sem ekki verður að fullu metinn til fjár. Það er eilífðarverkefni fyrir okkur að halda áfram þessari uppbyggingu og henni eigum við halda áfram ef við viljum vera samkeppnishæft nútímasamfélag."

    Tómas Atli Einarsson lagði fram eftirfarandi bókun við afgreiðslu á lið 1 í fundargerðinni:

    "Undirritaður getur ekki tekið undir framlagða bókun þar sem þar vantar mikilvægar og réttar staðreyndir um veigamikil atriði málsins. Af þeim sökum sé ég mér ekki fært að taka undir bókunina í núverandi mynd."

    Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum afgreiðslu bæjarráðs.

4.Bæjarráð Fjallabyggðar - 907. fundur - 5. febrúar 2026

Málsnúmer 2602001FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 8 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 1, 2 og 3 sem bornir eru upp sér.
Samþykkt
Liðir 1, 2 og 3 í fundargerðinni samþykktir með 7 atkvæðum.

Fundargerðin í heild að undanskildum liðum 1, 2 og 3 samþykktir með 7 atkvæðum.
  • 4.1 2602002 Þjóðvegur í þéttbýli Ólafsfjörður Áfangi 3
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 907. fundur - 5. febrúar 2026 Bæjarráð samþykkir að veita heimild fyrir lokuðu útboði á áfanga III á göngu- og hjólastíg meðfram þjóðvegi í þéttbýli í Ólafsfirði þegar samningur um kostnaðarskiptingu við Vegagerð liggur fyrir. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • 4.2 2502037 Endurbætur á sundlaug Siglufjarðar
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 907. fundur - 5. febrúar 2026 Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Finns Inga Sölvasonar að upphæð kr. 81.695.344 og felur framkvæmdasviði að ganga frá verksamningi um verkið. Verkið rúmast innan fjárfestingaáætlunar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • 4.3 2511002 Ferðaklasi Fjallabyggðar
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 907. fundur - 5. febrúar 2026 Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi við Ferðaklasa Fjallabyggðar að gefnum þeim skilyrðum er fram koma í drögum að samþykktum félagsins. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.

5.Bæjarráð Fjallabyggðar - 908. fundur - 12. febrúar 2026

Málsnúmer 2602003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 9 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Helgi Jóhannsson víkur af fundi við afgreiðslu á lið 1 í fundargerðinni.

Liður 1 í fundargerðinni samþykktur með 6 atkvæðum.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 1 samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Bæjarráð Fjallabyggðar - 909. fundur - 23. febrúar 2026

Málsnúmer 2602009FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 11 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 1 sem borin er upp sér.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 1 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 909. fundur - 23. febrúar 2026 Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurskoðunarskýrslu KPMG fyrir árið 2025 og vísar henni til samþykktar bæjarstjórnar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir framlagða endurskoðunarskýrslu KPMG fyrir árið 2025 með 7 atkvæðum.

7.Bæjarráð Fjallabyggðar - 910. fundur - 26. febrúar 2026

Málsnúmer 2602012FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 33. fundur - 13. janúar 2026

Málsnúmer 2601004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 5. fundur - 15. janúar 2026

Málsnúmer 2601005FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 5 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 1 og 2 sem bornir eru upp sér.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 1 og 2 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 9.1 2601038 Erindisbréf notendaráðs fatlaðs fólks í Fjallabyggð
    Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 5. fundur - 15. janúar 2026 Nefndin felur sviðsstjóra að vinna áfram í erindisbréfinu samkvæmt umræðu á fundinum. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir framlagt erindisbréf vegna notendaráðs fatlaðs fólks með 7 atkvæðum.
  • 9.2 2601039 Sérstakur húsnæðisstuðningur -viðmiðunarfjárhæðir
    Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 5. fundur - 15. janúar 2026 Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tekjuviðmið. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu að viðmiðunarfjárhæðum með 7 atkvæðum.

10.Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 6. fundur - 12. febrúar 2026

Málsnúmer 2602006FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 3 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

11.Ungmennaráð Fjallabyggðar - 44. fundur - 16. janúar 2026

Málsnúmer 2601007FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 2 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

12.Ungmennaráð Fjallabyggðar - 45. fundur - 13. febrúar 2026

Málsnúmer 2602007FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 5 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

13.Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd Fjallabyggðar - 6. fundur - 26. janúar 2026

Málsnúmer 2601008FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

14.Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd Fjallabyggðar - 7. fundur - 11. febrúar 2026

Málsnúmer 2602004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

15.Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 330. fundur - 4. febrúar 2026

Málsnúmer 2601015FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 1 og 2 sem bornir eru upp sér.
Samþykkt
Til máls tók Helgi Jóhannsson.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 1 og 2 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 15.1 2510044 Breyting á deiliskipulagi íþróttasvæðis á Ólafsfirði
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 330. fundur - 4. febrúar 2026 Nefndin leggur til að athugasemdum verði svarað í samræmi við framlagðar tillögur. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt og sent til Skipulagsstofnunar í samræmi við 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Við afgreiðslu þessa liðar lagði Helgi Jóhannsson fram eftirfarandi bókun:

    "Undirritaður vill koma með formlega athugasemd við fyrirliggjandi deiliskipulag. Það er mín skoðun að engin þörf sé að breyta legu göngustíga nyrst á skipulagssvæðinu (á milli Sigurhæða og íþróttamiðstöðvar). Nú þegar eru göngustígar á svæðinu sem ég vil meina að séu staðsettir á réttum stað og engin ástæða til að breyta því"

    Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 15.2 2107019 Deiliskipulag - Leirutangi
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 330. fundur - 4. febrúar 2026 Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti framlagða skipulagslýsingu og leggur til við bæjarstjórn að hún verði auglýst skv. 40 gr. skipulagslaga númer 123/2010. Bókun fundar Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt með 7 atkvæðum.

16.Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 158. fundur - 16. febrúar 2026

Málsnúmer 2601009FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

17.Trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar 2022 - 2026

Málsnúmer 2205076Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram tillögur að eftirfarandi breytingum í trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar.

María Sölvadóttir tekur sæti Maríu Leifsdóttur sem fulltrúi leik - og grunnskóla í stýrihópi Heilsueflandi samfélags
Harpa Hlín Jónsdóttir tekur sæti Dagnýjar Sifjar Stefánsdóttur sem aðalfulltrúi heilsugæslu í stýrihópi Heilsueflandi samfélags og Elfa Sif Kristjánsdóttir tekur sæti sem varafulltrúi.
Samþykkt
Framlagðar tillögur um breytingar á trúnaðarstöðum samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar samþykktar með 7 atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 18:00.