Fundargerðin er í 8 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 1, 2 og 3 sem bornir eru upp sér.
Samþykkt
.1
2602002
Þjóðvegur í þéttbýli Ólafsfjörður Áfangi 3
Bæjarráð Fjallabyggðar - 907. fundur - 5. febrúar 2026
Bæjarráð samþykkir að veita heimild fyrir lokuðu útboði á áfanga III á göngu- og hjólastíg meðfram þjóðvegi í þéttbýli í Ólafsfirði þegar samningur um kostnaðarskiptingu við Vegagerð liggur fyrir.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
.2
2502037
Endurbætur á sundlaug Siglufjarðar
Bæjarráð Fjallabyggðar - 907. fundur - 5. febrúar 2026
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Finns Inga Sölvasonar að upphæð kr. 81.695.344 og felur framkvæmdasviði að ganga frá verksamningi um verkið. Verkið rúmast innan fjárfestingaáætlunar.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
.3
2511002
Ferðaklasi Fjallabyggðar
Bæjarráð Fjallabyggðar - 907. fundur - 5. febrúar 2026
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi við Ferðaklasa Fjallabyggðar að gefnum þeim skilyrðum er fram koma í drögum að samþykktum félagsins.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
Fundargerðin í heild að undanskildum liðum 1, 2 og 3 samþykktir með 7 atkvæðum.