Bæjarráð Fjallabyggðar

909. fundur 23. febrúar 2026 kl. 08:15 - 09:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Endurskoðun KPMG 2025

Málsnúmer 2602039Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skoðun KPMG vegna stjórnsýslu fyrir árið 2025 en upplýsingar koma fram í endurskoðunarskýrslu þegar ársreikningur ársins liggur fyrir.
Samþykkt
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurskoðunarskýrslu KPMG fyrir árið 2025 og vísar henni til samþykktar bæjarstjórnar.

2.Fyrirtækjaþing sveitarfélaga

Málsnúmer 2602040Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá SSNE þar sem fram kemur að Akureyrarbær í samráði við SSNE mun halda fyrirtækjaþing í mars og er SSNE að bjóða fleiri sveitarfélögum stuðning við að halda sambærilegan viðburð.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna áhuga og möguleika á að halda sambærilegt þing í Fjallabyggð.

3.Greið leið - hluthafafundur 2026

Málsnúmer 2602046Vakta málsnúmer

Boðað er til hluthafafundar í Greiðri leið ehf þar sem leitað verður heimildar til að selja hluti félagsins í Vaðlaheiðargöngum hf. Fjallabyggð er hluthafi með um 0,07% eignarhlut.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð veitir bæjarstjóra heimild til þess að samþykkja fyrirliggjandi tillögu um sölu á hlut Fjallabyggðar í Vaðlaheiðargöngum hf.

4.Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga 2025 - 2026

Málsnúmer 2512039Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning frá innviðaráðuneyti þar sem tilkynnt er að ráðuneytið hafi fallist á þá tillögu Fjallabyggðar að heimilt verði að landa afla til vinnslu utan sveitarfélagins með sama hætti og gilti á fiskveiðiárinu 2024/2025 en ekki var fallist á þá ósk Fjallabyggðar að landa mætti afla á markað.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

5.Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 2602031Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn sjóðsins.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Haf- og strandsvæðaskipulag

Málsnúmer 2502038Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar frá félags - og húsnæðismálaráðuneyti þar sem fram kemur að enn hefur ekki verið tilnefnt í strandsvæðaskipulagsvinnu en verið er að undirbúa ferlið.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Sveitarstjórnarkosningar - Átak til hvatningar framboða

Málsnúmer 2602033Vakta málsnúmer

Vakin er athygli á því að Samband íslenskra sveitarfélaga og innviðaráðuneytið hefur sett af stað átak sem miðar að því að styrkja lýðræðið á sveitarstjórnarstigi en markmiðið er að hvetja til þátttöku í stjórnmálum í sveitarstjórnum.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Staðgreiðsluuppgjör sveitarfélaga 2025

Málsnúmer 2602034Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar um staðgreiðsluuppgjör sveitarfélaga 2025
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

9.Breyting á heilbrigðiseftirliti 2026

Málsnúmer 2602035Vakta málsnúmer

Fyrir liggja ýmsar upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar á starfsemi heilbrigðiseftirlita.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

10.Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir SSNE.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

11.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir framkvæmda, hafna - og veitunefndar, velferðarnefndar, fræðslu - og frístundanefndar og ungmennaráðs.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:30.