Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 330. fundur - 4. febrúar 2026

Málsnúmer 2601015F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 268. fundur - 26.02.2026

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 1 og 2 sem bornir eru upp sér.
Samþykkt
Til máls tók Helgi Jóhannsson.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 1 og 2 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .1 2510044 Breyting á deiliskipulagi íþróttasvæðis á Ólafsfirði
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 330. fundur - 4. febrúar 2026 Nefndin leggur til að athugasemdum verði svarað í samræmi við framlagðar tillögur. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt og sent til Skipulagsstofnunar í samræmi við 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Við afgreiðslu þessa liðar lagði Helgi Jóhannsson fram eftirfarandi bókun:

    "Undirritaður vill koma með formlega athugasemd við fyrirliggjandi deiliskipulag. Það er mín skoðun að engin þörf sé að breyta legu göngustíga nyrst á skipulagssvæðinu (á milli Sigurhæða og íþróttamiðstöðvar). Nú þegar eru göngustígar á svæðinu sem ég vil meina að séu staðsettir á réttum stað og engin ástæða til að breyta því"

    Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .2 2107019 Deiliskipulag - Leirutangi
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 330. fundur - 4. febrúar 2026 Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti framlagða skipulagslýsingu og leggur til við bæjarstjórn að hún verði auglýst skv. 40 gr. skipulagslaga númer 123/2010. Bókun fundar Afgreiðsla nefndarinnar samþykkt með 7 atkvæðum.