Bæjarráð Fjallabyggðar

488. fundur 21. febrúar 2017 kl. 08:00 - 09:20 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir aðalmaður, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ármann Viðar Sigurðsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar

1.Kröfuinnheimta fyrir Fjallabyggð

Málsnúmer 1702030Vakta málsnúmer

Undir þessum lið vék Sólrún Júlíusdóttir af fundi.
Lagt fram bréf frá Inkasso sem sér um innheimtu fyrir Fjallabyggð. Þar er óskað eftir að samningur vegna innheimtunnar sem rennur 15. apríl 2017 verði framlengdur um eitt ár.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

2.N4 - sjónvarp landsbyggðanna

Málsnúmer 1702029Vakta málsnúmer

Lögð fram umsögn bæjarstjóra vegna erindis sjónvarpsstöðvarinnar N4 um að styrkja sjónvarpsþættina "Að norðan".

Bæjarráð Fjallabyggðar mun ekki styrkja frjálsa fjölmiðla með beinum hætti. Fjallabyggð mun áfram auglýsa í frjálsum fjölmiðlum eins og verið hefur.

3.Opnun Siglufjarðarkirkju yfir sumarmánuðina

Málsnúmer 1702019Vakta málsnúmer

Umsögn deildarstjóra frístunda-, fræðslu-, markaðs- og menningarmála lögð fram vegna óska Siglufjarðarkirkju um viðveru unglinga frá vinnuskóla Fjallabyggðar yfir sumarmánuði.

Bæjarráð samþykkir að veita 150 tímum til þessa verkefnis eða alls 170.000 krónur sem færist á atvinnu og ferðamál.

4.Starfsmannamál í leikskólum Fjallabyggðar

Málsnúmer 1702063Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mættu deildarstjóri fræðslumála og leikskólastjóri.
Lögð fram ósk leikskólastjóra Fjallabyggðar um að fá að ráða leikskólakennara í 100% starf við Leikhóla vegna óvæntrar fjölgunar nemenda og aukins stuðnings vegna fatlaðs nemanda.

Bæjarráð samþykkir þessa ráðningu og vísar kostnaðarauka til viðauka við fjárhagsáætlun 2017.

5.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer 1702039Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsagnir heilbrigðiseftirlits, slökkviliðsstjóra og deildarstjóra tæknideildar vegna umsóknar um rekstrarleyfi.

Bæjarráð samþykkir að fengnum umsögnum að veita jákvæða umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi.

6.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer 1702040Vakta málsnúmer

Lagðar fram umsagnir heilbrigðiseftirlits, slökkviliðsstjóra og deildarstjóra tæknideildar vegna umsóknar um rekstrarleyfi.

Bæjarráð samþykkir að fengnum umsögnum að veita jákvæða umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi.

7.Skálarhlíð, sameining íbúða 2017

Málsnúmer 1701086Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða opnunar á tilboðum í sameiningu íbúða 3 hæð í Skálarhlíð. Deildarstjóri tæknideildar leggur til að lægsta tilboði verði tekið.
Eftirfarandi tilboð bárust:
Berg ehf 8.156.000
Minný ehf 8.860.000
ÓHK Trésmíði ehf 8.348.764
GJ smiðir ehf 8.621.935
Kostnaðaráætlun 7.656.720

Bæjarráð samþykkir að taka lægsta tilboði.

8.Lóðaframboð og lóðaverð

Málsnúmer 1702043Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Íbúðalánasjóð þar sem óskað er upplýsinga um lóðarverð og annan kostnað vegna úthlutunar lóða.

Lagt fram svar tæknideildar við fyrirspurn Íbúðalánasjóðs.

9.Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 1702045Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Lánasjóði sveitarfélaga, þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga.

10.Innleiðing á nýjum námsmatskvarða við lok grunnskóla

Málsnúmer 1702046Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti, þar sem áréttuð er innleiðing á nýjum námsmatskvarða við lok grunnskóla. Frá og með vori 2017 skulu allir grunnskólar með 10. bekk hafa lokið innleiðingu á nýjum námsmatskvarða A-D við lok 10. bekkjar grunnskóla.

Bæjarráð vísar erindinu til úrvinnslu hjá skólastjóra og fræðslu- og frístundanefnd.

11.Launaþróun tónlistarkennara og staða kjaraviðræðna

Málsnúmer 1612002Vakta málsnúmer



Föstudaginn 10. febrúar s.l. var miðlunartillaga ríkissáttasemjara í kjaradeilu Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum samþykkt.

Lagt fram til kynningar.

12.Staða og framtíð íslenskra sveitarafélaga

Málsnúmer 1702053Vakta málsnúmer



Föstudaginn 24. febrúar nk. er boðað til tveggja samráðsfunda á vegum verkefnisstjórnar um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga. Fundirnir verða haldnir á:
Veitingahúsinu Sölku, Húsavík og Hótel Kea, Akureyri.

Lagt fram til kynningar.

13.Verndarsvæði í byggð - Gömul byggð á Þormóðseyri, Siglufirði

Málsnúmer 1702058Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Fornleifastofnun Íslands vegna fornleifaskráningar á verndarsvæðum í byggð.

14.Íbúaskrá 2016

Málsnúmer 1702054Vakta málsnúmer

Lögð fram íbúaskrá Fjallabyggðar 1. desember 2016.

Íbúar Fjallabyggðar 1.12.2016 voru alls skráðir 2025.

15.Leiguheimili - mat á íbúðaþörf og nýtt framboð á ódýrum íbúðum

Málsnúmer 1702061Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Búfesti hsf. þar sem óskað er eftir fundi með fulltrúum sveitarfélagsins.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar að funda með fulltrúum Búfesti hsf.

16.Fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 1701009Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 31. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.

17.Fundargerðir stjórnar Eyþings 2017

Málsnúmer 1701008Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Eyþings, 291. og 292. fundar.

18.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2017

Málsnúmer 1701004Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar frá 15. febrúar s.l.

Fundi slitið - kl. 09:20.