Bæjarráð Fjallabyggðar

413. fundur 20. október 2015 kl. 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Helga Helgadóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Bás ehf - verkefnastaða

Málsnúmer 1510062Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mættu fulltrúi Bás ehf, Sveinn H. Zophoníasson og deildarstjóri tæknideildar Ármann V. Sigurðsson.

Farið var yfir stöðu þeirra verkefna sem eru í gangi fyrir Fjallabyggð.

2.Beiðni um aukið fjármagn 2015 og ósk um loftræstingu í skólaeldhús

Málsnúmer 1510005Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs komu skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar, Jónína Magnúsdóttir og deildarstjóri tæknideildar Ármann Viðar Sigurðsson.

a. Loftræsting í skólaeldhús í Ólafsfirði.
Lögð fram umsögn deildarstjóra tæknideildar.
Þar kemur m.a. fram að heildarkostnaður við smíði og uppsetningu á háfum og kerfi fyrir stofuna sé um 4 milljónir. Á fjárhagsáætlun 2015 eru 2 milljónir í önnur verkefni sem hægt væri að nýta til verkefnisins.

Bæjarráð samþykkir að klára verkefnið fyrir áramót.
Jafnframt er viðbótarfjárhæð vísað til viðauka við fjárhagsáætlun 2015.

b. Hagræðing á móti ráðningu.
Á 411. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar, 6. október 2015 var samþykkt ósk skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar um ráðningu stuðningsfulltrúa og starfskrafts í lengda viðveru til áramóta.
Bæjarráð fól skólastjóra að mæta launaútgjöldum með hagræðingu í rekstri og leggja fram tillögu fyrir bæjarráð.
Tillaga skólastjóra er að þar sem reikna má með meiri tekjum vegna nemenda með lögheimili í öðrum sveitarfélögum sem nemur a.m.k. kr. 1.200.000 umfram áætlun, vegi sú upphæð upp útgjaldaaukningu launa. Reiknað er með að launakostnaður við stuðningsfulltrúa í 63% starf er samtals u.þ.b. kr. 240.000 á mánuði með orlofi og launatengdum gjöldum. Launakostnaður við skólaliða í 25% starfi í lengdri viðveru er samtals u.þ.b. kr. 90.000 á mánuði með orlofi og launatengdum gjöldum.
Samtals að upphæð kr. 330.000 pr. mánuð eða samtals kr. 990.000 á árinu 2015.

Bæjarráð samþykkir tillögu skólastjóra og vísar breytingum milli deilda til viðauka við fjárhagsáætlun.

3.Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags skólaárið 2015-2016

Málsnúmer 1509072Vakta málsnúmer

Á 21. fundi fræðslu- og frístundanefndar, 8. október 2015, var lögð fram umsókn um tímabundna námsvist grunnskólanema utan lögheimilissveitarfélags.

Fræðslu- og frístundanefnd samþykkti umsóknina fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir umsókn og vísar upphæð sem upp á vantar í fjárhagsáætlun til viðauka við fjárhagsáætlun 2015 og gerðar fjárhagsáætlunar 2016.

4.Útboð á vátryggingum Fjallabyggðar

Málsnúmer 1408008Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að ráðgjafasamningi í tengslum við útboð á vátryggingum Fjallabyggðar við Consello ehf.

Bæjarráð samþykkir drög að samningi og vísar til viðauka við fjárhagsáætlun 2015.

5.Niðurrekstur á þili og dýpkun - Siglufjarðarhöfn

Málsnúmer 1510035Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir viðskiptaáætlun í tengslum við hafnarframkvæmdir ásamt samskiptum við Vegagerð, Innanríkisráðuneytið og ráðherra.

Áætlaður heildarkostnaður framkvæmdarinnar er 487 millj. þar af er hlutdeild hafnarsjóðs 109 millj.

Fyrir liggur reikningur fyrir efni í bryggjuþil og festingar að upphæð 79 millj. án vsk.

Bæjarráð samþykkir að heimila greiðslu á efniskaupum og vísar til viðauka við fjárhagsáætlun 2015.

Jafnframt samþykkir bæjarráð að vísa auknum útsvarstekjum þessa árs að upphæð 39,257 milljónum til viðauka við fjárhagsáætlun 2015, með tilvísun í staðgreiðsluáætlun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir 2015.

6.100 ára vígsluafmæli Ólafsfjarðarkirkju

Málsnúmer 1510067Vakta málsnúmer

Í tilefni 100 ára vígsluafmælis Ólafsfjarðarkirkju, samþykkir bæjarráð 100 þúsund króna gjöf til kirkjunnar.

7.Aðgangur að skíðasvæðinu Skarðsdal utan formlegs opnunartíma

Málsnúmer 1510061Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Skíðafélags Siglufjarðar Skíðaborg til Leyningsáss ses. um aðgang félagsins að skíðasvæðinu utan formlegs opnunartíma.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka málið upp í stjórn Leyningsáss.

8.Mál er tengjast Ofanflóðasjóði

Málsnúmer 1503016Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar svar Ofanflóðanefndar frá 196. fundi, við erindi Fjallabyggðar frá 9. september 2015.

a. Aðkoma Ofanflóðasjóðs að viðgerðum vegna tjóns sem varð á Hólavegi og Fossvegi í úrhellinu 28. ágúst 2015 er til nánari skoðunar.
b. Ósk um endurbætur á dreni úr Bakkatjörn neðan garðs 6 (Kálfs) var samþykkt og verður verkið unnið í samstarfi við starfsmann nefndarinnar.
c. Aðkoma Ofanflóðasjóðs að viðgerðarkostnaði á Hólavegi norðan Hvanneyrarár að Hvanneyrarbraut er samþykktur með 60% hlut, að upphæð allt að 17,5 millj.

9.Ákvæði sveitarstjórnarlaga um miklar fjárfestingar

Málsnúmer 1510060Vakta málsnúmer

Í erindi Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, dagsett 7. október 2015, er farið yfir ákvæði 66. greinar sveitarstjórnarlaga um miklar fjárfestingar.
Eftir yfirferð eftirlitsnefndar á ársreikningi sveitarfélagsins 2014 er óskað eftir upplýsingum um hvort einstaka fjárfesting þess árs sé hærri en 20% af skatttekjum.

Engin einstaka framkvæmd fór yfir 20% af skatttekjum.
Bæjarstjóra falið að svara erindinu.

10.Grenndarstöð fyrir sveitarfélög

Málsnúmer 1510063Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar frá Íslenska gámafélaginu, grenndarstöð, sem lausn fyrir flokkun í sveitarfélögum.

11.Ósk um niðurfellingu á viðskiptaskuld

Málsnúmer 1509056Vakta málsnúmer

Á 410. fundi bæjarráðs, 28. september 2015, var tekið fyrir erindi Jassklúbbs Ólafsfjarðar þar sem óskað er eftir niðurfellingu á viðskiptaskuld frá árinu 2012, vegna auglýsinga á Jasshátíð klúbbsins það árið, þar sem þáverandi menningarfulltrúi hafi samþykkt að Fjallabyggð greiddi þær.

Bæjarráð fól deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála að veita umsögn.

Umsögn lögð fram.

Bæjarráð óskar eftir því að forsvarsmenn Jassklúbbs Ólafsfjarðar mæti á fund ráðsins.

12.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer 1510066Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 14. október 2015 er varðar umsögn um nýtt rekstrarleyfi til sölu gistingar í Lindargötu 22, 580 Siglufirði.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

13.Erindi Íbúðalánasjóðs til sveitarstjórnar

Málsnúmer 1510043Vakta málsnúmer

Í erindi Íbúðalánasjóðs til bæjarstjórnar Fjallabyggðar, dagsett 8. október 2015, er Fjallabyggð boðið til viðræðna um kaup á eignum sjóðsins í Fjallabyggð.

Þar sem Fjallabyggð hefur verið að losa sig við íbúðir úr eignasafni sínu, sér bæjarráð sér ekki fært að taka upp viðræður um kaup á eignum Íbúðalánasjóðs.

14.225.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á skipulagslögum

Málsnúmer 1510059Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breyt. á skipulagslögum (grenndarkynning), 225. mál.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið.