Bæjarráð Fjallabyggðar

356. fundur 23. september 2014 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri

1.Fundargerðir Leyningsás ses - 2014

Málsnúmer 1409055Vakta málsnúmer

Valtýr Sigurðsson hrl. kemur á fundinn
Formaður bæjarráðs bauð Valtý Sigurðsson hrl. velkominn til fundar.
Bæjarstjóri lagði fram fundargerð frá stjórn Leyningsáss ses og ársreikninga fyrir félagið og frá Valló ehf.
Valtýr fór yfir aðkomu sína að samningum um skíðasvæðið á síðasta kjörtímabili.
Valtýr fór yfir verkefnastöðu skíðasvæðisins og framtíðarhorfur. Hann ræddi einnig stöðu verkefna við golfvöllinn á Siglufirði sem og stöðu verksins og reikninga.

Bæjarráð þakkaði Valtý fyrir góða yfirferð og skýringar.

2.Vatnshitaréttindi jarðanna Garðs og Skeggjabrekku

Málsnúmer 1010092Vakta málsnúmer

Valtýr Sigurðsson hrl. fer yfir málið
Valtýr Sigurðsson fór yfir minnisblað sitt um könnun á rétti Fjallabyggðar á heitu vatni í Skeggjabrekku.

Bæjarráð felur lögmanni að sækja málið gegn Norðurorku á grundvelli niðurstöðu hans sem fram kemur í áðurnefndu minnisblaði.

3.Söluheimild - leiguíbúðir

Málsnúmer 1409029Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála varðandi söluheimild fyrir leiguíbúðir og ábendingu um kaup á íbúð.

Bæjarráð ákvað að fresta málinu til næsta fundar.

4.Tjaldsvæði Fjallabyggðar

Málsnúmer 1408014Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá skipulags- og umhverfisnefnd frá 29.ágúst 2014 og varðar lagfæringar á tjaldsvæði í Ólafsfirði.

Bæjarráð tekur undir framkomnar ábendingar fagnefndar og felur bæjarstjóra að koma framkvæmdinni af stað hið fyrsta og nýta til þess heimildir í fjárhagsáætlun bæjarfélagsins.
Gert var ráð fyrir 5 m.kr. í áætlun 2014.

5.Aðalfundur Eyþings 2014

Málsnúmer 1409068Vakta málsnúmer

Lögð fram dagskrá aðalfundar Eyþings sem haldinn verður 3. og 4. október að Narfastöðum í Þingeyjarsýslu.

6.Erindi frá Siglunesi hf. - Gunnlaugi Oddssyni

Málsnúmer 1409035Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf bæjarstjóra frá 18. september 2014 til Gunnlaugs Oddssonar er varðar skilyrði fyrir því að forkaupsréttur verði virkur.

7.Uppfærsla og viðbætur á upplýsingakerfi

Málsnúmer 1409034Vakta málsnúmer

Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Lagt fram minnisblað frá deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála dags. 09.09.2014.
Leggur hann áherslu á að hann fái umboð til að ganga til samninga við tilboðsgjafa um heildarinnleiðingu og að kostnaði verði skipt á tvö fjárhagsár.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt og viðbótarfjármagn verði tekið inn í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015.

8.Fjárhagsáætlun 2015 og 2016 - 2018

Málsnúmer 1406040Vakta málsnúmer

Ætlunin var að fá fulltrúa KPMG á fund bæjarráðs, en komu þeirra var frestað til 30.09.2014.

9.Fráveita Sveitarfélagsins - erindi frá Ramma hf. og Primex ehf.

Málsnúmer 1409053Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá framkvæmdarstjóra Ramma dags. 9. september. Bréfið er til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd.

10.Beiðni um upplýsingar vegna tímabundinnar ráðningar í stjórnunarstöðu við Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1406072Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Jafnréttisstofu frá 26. júní 2014 og bréf frá lögmanni bæjarfélagsins frá 8. ágúst 2014.

11.Kynningarbréf frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 1409054Vakta málsnúmer

Lagt fram kynningarbréf frá samtökum sjávarútvegssveitarfélaga ódagsett. Fram kemur að aðalfundur verður haldinn 8. október nk. í tengslum við Fjármálaráðstefnuna.

12.Aðalfundur Róta bs. málefni fatlaðs fólks - fulltrúar Fjallabyggðar

Málsnúmer 1409052Vakta málsnúmer

Aðalfundur verður haldinn þriðjudaginn 30.september kl. 13:00 í Menningarhúsinu Dalvík.
Samkvæmt samþykktum Róta bs. 10. gr. skal halda aðalfund fyrir lok septembermánaðar. Á aðalfundi byggðasamlagsins eiga sæti fulltrúar allra aðildarsveitarfélaganna,einn fulltrúi fyrir hvert sveitarfélag á starfssvæðinu, auk eins fulltrúa fyrir hverja byrjaða 400 íbúa í sveitarfélaginu.
Fjallabyggð á 7 fulltrúa.
Fulltrúar Fjallabyggðar eru kjörnir bæjarfulltrúar og varamenn þeirra.
Kjörgengir til setu á aðalfundi eru aðal-og varamenn í sveitarstjórnum og framkvæmdastjórar aðildarsveitarfélaganna.

13.Aðalfundur Seyru ehf

Málsnúmer 1408060Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um aðalfundinn. Hann var haldinn 12.09.2014.

14.Breyting á launaáætlun 2014

Málsnúmer 1408064Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrstu drög að breytingu á launaáætlun 2014.

15.Launayfirlit tímabils 2014

Málsnúmer 1407031Vakta málsnúmer

Lagt fram mánaðarlegt launayfirlit fyrir janúar til ágúst.
Niðurstaðan fyrir heildina er 604,2 m.kr. sem er 101,7% af áætlun tímabilsins sem var 593,8 m.kr.
Sumar deildir eru yfir áætlun tímabilsins samtals um 35,5 m.kr. á móti öðrum deildum sem eru undir áætlun, samtals um 25,1 m.kr.
Nettóniðurstaða er því 10,4 m.kr. umfram áætlun tímabilsins.

16.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2014

Málsnúmer 1401020Vakta málsnúmer

Fundargerð 818. fundar stjórnar frá 12. september lögð fram til kynningar.

Fundi slitið.