Bæjarráð Fjallabyggðar

327. fundur 17. desember 2013 kl. 17:00 - 19:00 á bæjarskrifstofum Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Þorbjörn Sigurðsson formaður
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Sólrún Júlíusdóttir varamaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri

1.Héðinsfjarðargöng - lok verkefnis

Málsnúmer 1309007Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá formanni stýrihóps um gerð Héðinsfjarðarganga. Eftir yfirferð á samskiptum við bæjarfélagið er lagt til að bæjarfélagið taki við  frágangi á svæðinu. 
Náðst hefur samkomulag um fjárupphæð til að ljúka frágangi við Kleifartipp. Drög að samkomulagi lagt fram til kynningar. 

Bæjarráð samþykkir framkomna tillögu er varðar uppgjör og frágang á Kleifartipp og felur bæjarstjóra að undirrita samkomulagið.

2.Kvörtun fjögurra ellilífeyrisþega í Ólafsfirði

Málsnúmer 1311045Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Ásgeiri Ásgeirssyni og Sæunni Axelsdóttur frá 6.12.2013, en í bréfinu koma fram ábendingar og kvartanir um opnunartíma sundlauga á Siglufirði og Ólafsfirði.

Lagt fram bréf frá Axel Pétri Ásgeirssyni frá 9.12.2013 er varðar málefni sundlauga í Fjallabyggð.

Bæjarráð vísar þessum erindum til umfjöllunar í fræðslu- og frístundanefnd.

3.Málefni Leyningsáss ses.

Málsnúmer 1206038Vakta málsnúmer

Róbert Guðfinnsson ritar bæjarráði bréf dags. 9.12.2013. Í bréfinu er minnt á samkomulag milli Rauðku ehf og Fjallabyggðar frá 28. apríl 2012. Búið er að leysa þrjú af þeim fimm verkefnum sem samkomulagið nær til. Þau verkefni sem nú koma til skoðunar eru Miðbær Siglufjarðar og uppfylling við innrihöfn þ.e. tanginn.
Bréfritari óskar eftir formlegum viðræðum sem fyrst um þessa verkþætti.

 

Bæjarráð telur rétt að boða til samráðsfundar í janúar. Bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar er falið að boða til fundarins.

4.Viðauki við fjárhagsáætlun 2013 og 2014 - 2016

Málsnúmer 1303056Vakta málsnúmer

Lagðar fram hugmyndir um lausnir á biðlista á leikskóla Fjallabyggðar á Siglufirði.

Bæjarráð samþykkir fjárveitingu sem nemur kr. 2.0 m.kr. Bæjarráð vísar málinu til fræðslu- og frístundanefndar og leggur áherslu á að foreldrráð verði með í ráðum. Rétt er að kynna fullmótaðar tillögur fyrir foreldrum barna á Leikskálum.Viðauki er samþykktur samhljóða.

5.Fundir bæjarstjóra með forstöðumönnum - 2013

Málsnúmer 1307047Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 12. desember sl. lögð fram til kynningar.

6.Starf verkstjóra í þjónustumiðstöð

Málsnúmer 1311050Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga deildarstjóra tæknideildar um ráðningu í starf bæjarverkstjóra Fjallabyggðar.

Lagt er til að Birgir Ingimarsson verði ráðinn í starfið og getur hann hafið störf um 20. janúar n.k.

Bæjarráð samþykkir fram komna tillögu samhljóða.

7.Uppsögn forstöðumanns Bókasafns og Héraðsskjalasafns

Málsnúmer 1312032Vakta málsnúmer

Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir segir starfi sínu lausu sem forstöðumaður á Bóka- og hérðasskjalasafni Fjallabyggðar. Óskar hún eftir lausn frá starfi frá og með 1. febrúar n.k.

Bæjarstjóra er falið að auglýsa starfið laust til umsóknar. Starfslok verða gerð í samræmi við reglur bæjarfélagsins.

8.Ályktanir sveitarstjórnarvettvangs EFTA

Málsnúmer 1312022Vakta málsnúmer

Lagðar fram ályktanir frá sveitarstjórnarvettvangi EFTA um endurskoðun evrópskra reglna um úrgangsmál og tilskipanir um endurnýtingu opinberra upplýsinga.

Lagt fram til kynningar.

9.Uppsetning stoðvirkja í Hafnarfjalli - fundargerðir

Málsnúmer 1307013Vakta málsnúmer

Lögð fram framvinduskýrsla fyrir desember 2013.

10.Aðalfundur Flokkun Eyjafjörður ehf. 2013

Málsnúmer 1306039Vakta málsnúmer

Aðalfundur Flokkunar ehf verður haldinn á Akureyri 30.12.2013.

Bæjarráð skipar Arnar Frey Þrastarsson sem sinn fulltrúa á aðalfundinn með umboð bæjarfélagsins og tilnefnir hann í stjórn fyrir Fjallabyggð.

Samþykkt samhljóða.

11.Starfslýsingar deildarstjóra Fjallabyggðar

Málsnúmer 1312035Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að tveimur starfslýsingum deildarstjóra FJallabyggðar. Þær verða þrjár staðfestar á næsta fundi bæjarráðs.

12.Ársskýrsla Tónskóla Fjallabyggðar 2012-2013

Málsnúmer 1312031Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

13.100 ár frá byggingu elsta hluta skólahúsnæðis við Norðurgötu á Siglufirði

Málsnúmer 1312039Vakta málsnúmer

18. desember verða 100 ár frá því að elsti hluti skólabyggingar við Norðurgötu á Siglufirði var tekinn í notkun.

Af því tilefni verður opið hús frá kl. 11:00 - 13:00 og munu nemendur í 1. - 4. bekk á Siglufirði vera með verkefnakynningu og syngja fyrir gesti kl. 11:15 og 12:30.

Bæjarfulltrúar eru hvattir til að mæta.

Fundi slitið - kl. 19:00.