100 ár frá byggingu elsta hluta skólahúsnæðis við Norðurgötu á Siglufirði

Málsnúmer 1312039

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 327. fundur - 17.12.2013

18. desember verða 100 ár frá því að elsti hluti skólabyggingar við Norðurgötu á Siglufirði var tekinn í notkun.

Af því tilefni verður opið hús frá kl. 11:00 - 13:00 og munu nemendur í 1. - 4. bekk á Siglufirði vera með verkefnakynningu og syngja fyrir gesti kl. 11:15 og 12:30.

Bæjarfulltrúar eru hvattir til að mæta.