Bæjarráð Fjallabyggðar

211. fundur 19. apríl 2011 kl. 17:00 - 19:00 í bæjarstjórnarsal ráðhússins á Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Ingvar Erlingsson varaformaður
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Bjarkey Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Alþýðuhúsið á Siglufirði og tún sunnan við - framtíðarnýting

Málsnúmer 1104026Vakta málsnúmer







Lögð fram tillaga Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur um nýtingu á Alþýðuhúsinu á Siglufirði og túninu sunnan við þá byggingu og hugmyndir um aðkomu sveitarfélagsins að verkefninu.
Tillagan gerir ráð fyrir því að Alþýðuhúsið verði lifandi menningarhús og þar sunnan við verði skúlptúrgarður.
Aðalheiður flytji starfsemi sína að hluta, í húsið og skipuleggi m.a. sýningarhald, menningardaga barna og listasmiðjur.

Bæjarráð tekur vel í hugmyndina og vísar til umfjöllunar í menningarnefnd og skipulags- og umhverfisnefnd.

2.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer 1104042Vakta málsnúmer









Lagt fram bréf frá sýslumanninum á Siglufirði dags. 12. apríl s.l. Um er að ræða beiðni um umsögn vegna umsóknar Daða Más Guðmundssonar kt. 210181-4589 f.h. Billans ehf.
Verið er að sækja um rekstrarleyfi á grundvelli 11. gr. laga nr. 85/2207, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald vegna reksturs veitingastofunnar.


 


Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti umrædda umsókn og gerir ekki athugasemdir við afgreiðslutíma og eða staðsetningu enda fáist tilskilin leyfi frá heilbrigðiseftirliti, skipulags og byggingarfulltrúa og frá eldvarnareftirliti Slökkviliðs Fjallabyggðar.

3.Breyting á nefndarskipan

Málsnúmer 1104050Vakta málsnúmer

Þessum dagskrárlið var frestað til næsta fundar.

4.Íslandsmót öldunga í blaki

Málsnúmer 1104053Vakta málsnúmer

Óskar Þórðarson óskar eftir stuðningsyfirlýsingu frá Fjallabyggð er varðar umsókn um að halda Íslandsmót öldunga í blaki á Tröllaskaga.

Íslandsmótið verður haldið 19. - 21. apríl 2012, eða 3. - 5. maí 2012.

Bæjarráð styður þessa umsókn og samþykkir að fela Íþrótta- og tómstundafulltrúa að undirbúa og kanna frekari aðkomu Fjallabyggðar að fyrirhuguðu móti.

5.Tillaga um verkefnastjórn og/eða vinnuhóp um hafnsækna starfsemi

Málsnúmer 1104057Vakta málsnúmer

Rætt var um að setja upp verkefnastjórn og vinnuhóp um hafnsækna starfsemi í Fjallabyggð.
Samþykkt að afgreiða þetta mál á næsta fundi.

6.Akstursþjónusta fyrir Fjallabyggð

Málsnúmer 1103024Vakta málsnúmer









Fyrir liggur samantekt félagsmálastjóra frá 14. apríl 2011 um akstursþjónustu Fjallabyggðar, eins og hún snýr að verkefnum tengdum þjónustu við fatlaða og aldraða. 


Bæjarráð hafði áður óskað eftir umsögn um þörf og fyrirkomulag akstursþjónustu á vegum Fjallabyggðar.

Félagsmálanefnd hefur fjallað um málið og leggur til að akstursþjónustan verði boðin út en ákvörðun um sölu á bifreiðinni, VW Caravelle YL-131, verði tekin í framhaldi af útboðinu.  Félagsmálanefnd fól starfsmönnum félagsþjónustunnar að útfæra nánar þarfagreiningu á þjónustuakstri fatlaðra og aldraðra.


Málið er tvíþætt að mati félagsmálastjóra.


Annars vegar núverandi þjónusta er tengist málefnum aldraðra í Skálahlíð og aksturs yngri bekkja grunnskólans í skólasund.


Hins vegar vaxandi kröfur, sjá ferliþjónustu 34. gr. laga nr. 59/1982 um málefni fatlaðra og 13. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra.


Bæjarráð samþykkir að þegar fyrir liggur þarfagreining á þjónustuakstri fatlaðra og aldraðra verði gerð verðkönnun um akstursþjónustu. 

7.Snjóflóðahættumat fyrir skíðasvæði í Siglufirði

Málsnúmer 1009145Vakta málsnúmer

Undirritaður samningur lagður fram til kynningar.

8.Varðar Aðalgötu 32 Siglufirði

Málsnúmer 1011143Vakta málsnúmer

Kynnt niðurstaða skipulags- og umhverfisnefndar frá 18. apríl 2011, varðandi klæðningu á Aðalgötu 32 Siglufirði og álit lögmanns sveitarfélagsins vegna úrskurðar úrskurðanefndar skipulags- og byggingarmála frá 1. apríl 2011.
Málið verður til afgreiðslu á næsta bæjarstjórnarfundi.

9.Fundagerðir vinnuhóps bæjarráðs um fræðslumál í Fjallabyggð

Málsnúmer 1101040Vakta málsnúmer

Fundargerð lögð fram til kynningar.

10.Fundargerð deildarstjóra Fjallabyggðar frá 7. apríl 2011

Málsnúmer 1104058Vakta málsnúmer

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Á fund bæjarráðs kom deildarstjóri tæknideildar og fór yfir verkefnastöðu.

Fundi slitið - kl. 19:00.