Málsnúmer 2510062Vakta málsnúmer
Þann 28. ágúst sl. samþykkti stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga rammasamning við STEF og Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda (SFH) vegna opinbers tónflutnings á vegum sveitarfélaga. Jafnframt var Sambandinu falið að kynna samninginn fyrir sveitarfélögum og hvað hann felur í sér ef þau kjósa að nýta sér hann.
Markmið rammasamningsins er að einfalda framkvæmd og umsýslu höfundaréttargjalda vegna opinbers tónflutnings sveitarfélaga og skapa aukið gegnsæi og skýrleika um innheimtu og verðlagningu. Samningurinn tekur m.a. til tónflutnings í ýmsum stofnunum sveitarfélaga og á viðburðum sem sveitarfélög standa sjálf fyrir, með þeim afmörkunum sem nánar koma fram í samningnum.
Mikilvægt er að árétta að rammasamningurinn er valkvæður fyrir sveitarfélög. Undirritun Sambandsins skuldbindur ekki einstök sveitarfélög til að gerast aðilar að samningnum eða til greiðslu samkvæmt honum. Hvert sveitarfélag tekur sjálfstæða ákvörðun um hvort það vill gera sérstakan samning við STEF á grundvelli rammasamningsins. Sveitarfélögum er jafnframt áfram í sjálfsvald sett að gera eigin samninga við STEF.
Leyfisgjald skv. rammasamningi miðast við fjölda íbúa í viðkomandi sveitarfélagi og myndi Fjallabyggð greiða kr. 79 pr íbúa eða um kr. 158.000 árlega.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að reglum um álagningu og afslátt af fasteignaskatti og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.