Álagningarreglur fasteignagjalda 2027

Málsnúmer 2610085

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 940. fundur - 12.11.2026

Fyrir liggur tillaga að álagningarreglum fasteignagjalda fyrir árið 2027 en gert er ráð fyrir óbreyttum álagningarreglum frá árinu 2026 að því undanskildu að sorphirðugjöld hækka um 2,5%. Jafnframt liggur fyrir tillaga að reglum um afslátt af fasteignaskatti og er tekjuviðmið uppfært miðað við launaþróun. Hámarksafsláttur skv. afsláttarreglum hækkar úr kr. 104.000 í kr. 110.000.
Samþykkt
Eins og fram kemur hækkar álagning sorphirðugjalda um 2,5% en að öðru leyti er ekki um breytingu á álagningu að ræða milli ára. Afsláttur af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega hækkar úr kr. 104.000- í kr. 110.000- eða um tæp 6%, tekjuviðmið uppfært miðað við launaþróun.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að reglum um álagningu og afslátt af fasteignaskatti og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.