Erindi til innviðaráðherra vegna Loftbrúar

Málsnúmer 2611001

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 939. fundur - 06.11.2026

Fyrir liggur erindi frá SSNE til innviðaráðherra þar sem stjórn SSNE leggur áherslu á mikilvægi Loftbrúar sem byggðatækis til að draga úr búsetutengdum aðstöðumun og bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri
þjónustu. Bent er á að við endurskoðun úrræðisins þarf að hafa að leiðarljósi að ferðakostnaður sé viðráðanlegur og fyrirsjáanlegur, einnig þegar ferðast þarf með skömmum fyrirvara. Með erindinu vill stjórnin koma á framfæri sjónarmiðum sínum um boðaðar breytingar á Loftbrú og kalla eftir samtali um framtíðarútfærslu hennar.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð tekur undir erindi SSNE til innviðaráðherra og lýsir yfir vonbrigðum með samráðsleysi við landsbyggðirnar.