Undirbúningur mála og gæði fundargagna - framkvæmd 49. gr. samþykktar um stjórn Fjallabyggðar

Málsnúmer 2611004

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 939. fundur - 06.11.2026

Fyrir liggur erindi frá bæjarráðsfulltrúa Tómasi Atla Einarssyni f.h. kjörinna fulltrúa Sjálfstæðisflokks þar sem óskað er eftir að málefnið verði tekið á dagskrá bæjarráðsfundar til umfjöllunar.

Lagt fram til kynningar
Tómas Atli, bæjarráðsfulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun ásamt meðfylgjandi greinargerð:

"Bæjarráð áréttar að bæjarstjóra beri að tryggja vandaðan undirbúning mála sem lögð eru fyrir bæjarstjórn, bæjarráð og nefndir, í samræmi við 49. gr. samþykktar um stjórn Fjallabyggðar nr. 490/2025.

Bæjarstjóri skal halda utan um gagnaöflun, yfirfara hvort gögn séu fullnægjandi og kalla eftir þeim upplýsingum, umsögnum, kostnaðarmati og faglegu mati á valkostum sem þörf er á frá ábyrgum sviðsstjórum eða öðrum hlutaðeigandi aðilum.

Bæjarstjóri skal tryggja að nauðsynleg gögn fylgi fundarboði og að skýrt komi fram hvaða ákvörðunar er óskað og á hvaða forsendum hún byggist. Vanti mikilvægar upplýsingar skal gera grein fyrir því og leggja til frestun ákvörðunar þar til úr hefur verið bætt."

Bæjarstjóri leggur fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarstjóri áréttar að stjórnsýsla Fjallabyggðar leggur mikinn metnað í að undirbúa öll mál af fagmennsku, hlutlægni og í samræmi við 49. gr. samþykktar um stjórn Fjallabyggðar og stjórnsýslulög nr. 37/1993. Gagnaöflun og mat á valkostum tekur eðlilega mið af umfangi hvers máls svo tryggja megi skilvirka stjórnsýslu og órofna þjónustu við íbúa. Ávallt er tekið fagnandi við efnislegum ábendingum og fyrirspurnum kjörinna fulltrúa á fundum um einstök mál ef frekari skýringa er þörf."

Fulltrúar H-lista og S-lista taka undir bókun bæjarstjóra.