Losun úr fráveitu Fjallabyggðar 2026

Málsnúmer 2608042

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 929. fundur - 20.08.2026

Fyrir liggja upplýsingar, vegna kvartana frá íbúum, um losun úr dælubílum Verkvals eftir hreinsun á fráveitulögnum í Ólafsfirði.
Samþykkt
Fyrir liggur lausn um breytt verklag hvernig förgun á efni úr dælubílum Verkvals verði háttað í framtíðinni í samræmi við kröfur. Hætt verður að nýta holur til losunar í Kleifarhorni og á Siglufirði einnig.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 935. fundur - 02.10.2026

Fyrir liggur minnisblað um stöðu holræsahreinsunar 2026.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Fyrir liggur minnisblað frá Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs um stöðu holræsahreinsunar á Siglufirði og Ólafsfirði sem staðið hefur frá því seint á árinu 2024 þar til nú að þeim er lokið. Verkið hefur orðið dýrara því það kom í ljós í sumar að holræsakerfið í Ólafsfirði var yfirfullt af sandi, grjóti og ýmsu drasli. Það tók því lengri tíma að hreinsa kerfið en áætlað var. Holræsakerfin á Siglufirði og Ólafsfirði eru nú betur í stakk búin að taka við rigningarvatni eins og þeim er ætlað, ekki síst í stórrigningum. Bæjarráð þakkar sviðsstjóra fyrir minnisblaðið og leggur til að sett verði frétt á heimasíðu Fjallabyggðar með þeim myndum sem fylgja málinu. Það getur valdið stórtjóni á fasteignum ef fráveitulagnir stíflast af allskonar drasli sem á alls ekki heima í fráveitulögnum.