Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna

Málsnúmer 2604026

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 916. fundur - 16.04.2026

Fyrir liggur erindi frá umboðsmanni barna þar sem sveitarstjórnir eru hvattar til þess að koma á umræðufundi með fulltrúum framboða og nemendum grunnskóla fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð beinir því til deildarstjóra fræðslu- og frístundamála að skipuleggja umræðufund grunnskólanemenda með fulltrúum framboða til sveitarstjórnarkosninga í Fjallabyggð.