Snjómokstur 2026

Málsnúmer 2604014

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 916. fundur - 16.04.2026

Fyrir liggja vinnuskjöl bæjarstjóra með samantekt á snjómokstri í Fjallabyggð undanfarin ár.
Samþykkt
Ljóst er að kostnaður við snjómokstur það sem af er árinu 2026 er umtalsvert hærri heldur en áætlanir gerðu ráð fyrir en kostnaður í mars nam ríflega 30 milljónum króna, um 20 milljónir á Siglufirði og um 10 milljónir á Ólafsfirði. Að teknu tilliti til þess að snjóflutningur á Siglufirði, þ.e. keyrsla á snjó í burtu, var umtalsverður á meðan ekki var keyrt í burtu á Ólafsfirði m.a. vegna vélsleðamóts, er kostnaðarskipting nokkuð í samræmi við kílómetrafjölda gatnakerfis í hvorum byggðarkjarna.
Vegna þessa aukins kostnaðar miðað við áætlun er bæjarstjóra falið að gera tillögu að tilfærslu og viðauka í fjárhagsáætlun ársins 2026 þar sem framlag til snjómoksturs verði hækkað.