Bæjarráð Fjallabyggðar

650. fundur 05. maí 2020 kl. 08:15 - 09:10 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Staðgreiðsla tímabils - 2020

Málsnúmer 2001113Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit staðgreiðslu útsvars fyrir tímabilið janúar til apríl 2020. Staðgreiðsla fyrir tímabilið nemur kr. 68.636.674 eða 90,03% af tímabilsáætlun.

2.Áframhaldandi viðbrögð - Aðgerðir til viðspyrnu vegna Covid19.

Málsnúmer 2003070Vakta málsnúmer

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármáladeildar, dags. 30.04.2020 er varðar áhrif Covid-19 á fjármáladeild ásamt greiningu Motus á stöðu innheimtu í Fjallabyggð, dags. 29.04.2020 frá janúar 2019 til mars 2020.
Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra félagsmáladeildar, dags. 29.04.2020 er varðar stöðuskýrslu félagsmáladeildar vegna Covid-19.
Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra fræðslu-, frístunda, og menningarmála, dags. 29.04.2020 er varðar áhrif Covid-19 á stöðu fræðslu-, frístunda- og menningarmála.

Bæjarráð þakkar greinagóða yfirferð.

3.Vatnsveita í sumarhús, Hólkoti

Málsnúmer 2004018Vakta málsnúmer

Lögð fram yfirlýsing eigenda af borholum fyrir kalt neysluvatn í landi Hólkots, nánar tiltekið fyrir sumarhús í landi Hólkots, dags. 29.04.2020 þar sem eigendur afsala sér eignarrétti á borholum til Fjallabyggðar.

Bæjarráð samþykkir að Fjallabyggð taki að sér uppbyggingu og rekstur vatnsveitu fyrir sumarhús í landi Hólkots. Eigendum sumarhúsa býðst að fá nýja heimæð gegn greiðslu stofngjalds kr. 140.000 og að fyrrum eigendur borholanna verði boðin 50% afsláttur af ofangreindu stofngjaldi fyrir heimtaug.

4.Gervigrasvöllur Fjallabyggð

Málsnúmer 2004001Vakta málsnúmer

Á 684. fundi bæjarráðs fól bæjarráð bæjarstjóra að svara erindi Vals Þórs Hilmarssonar varðandi uppbyggingu gervigrasvallar í Fjallabyggð.

Lögð fram drög að svarbréfi bæjarstjóra til Vals Þórs Hilmarssonar vegna erindis hans varðandi uppbyggingu gervigrasvallar í Fjallabyggð.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur bæjarstjóra að senda bréfið.

5.Samningur um hreinsun á þjóðvegum.

Málsnúmer 2004064Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi milli Vegagerðarinnar og Slökkviliðs Fjallabyggðar um samning um hreinsun þjóðvega í kjölfar umferðaróhappa.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

6.Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - óvissa um tekjur á árinu 2020.

Málsnúmer 2004030Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 29.04.2020 þar sem fram kemur að ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafi á fundi sínum, þann 24. apríl sl. ákveðið í ljósi væntanlegs samdráttar á tekjum sjóðsins að lækka áætlaðar mánaðargreiðslur til sveitarfélaga vegna útgjaldajöfnunarframlaga og framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti um 12,5%.

Framlög tengd yfirfærslu fatlaðs fólks og grunnskólans sem byggja á staðgreiðslu útsvars í sjóðinn verða með óbreyttu sniði mánaðarmótin apríl/maí. Sá hluti tekna er tilheyrir yfirfærslu fatlaðs fólks og byggir á skatttekjum ríkissjóðs verður enduráætlaður síðar.

Að óbreyttu mun sjóðnum berast ný spá um áætlaðar skatttekjur ríkissjóðs og útsvarstekjur sveitarfélaga á næstu dögum og verður þá unnt að enduráætla framlög ársins.

7.Áminning um gerð viðbragðsáætlana til að bæta loftgæði

Málsnúmer 2004070Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að viðbragðsáætlun Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra vegna loftmengunar samkvæmt 20. gr. reglugerðar nr. 787/1999.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við drögin.

8.Frá nefndasviði Alþingis - 715. mál til umsagnar

Málsnúmer 2004076Vakta málsnúmer

Lagt fram til umsagnar frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis dags. 30.04.2020, frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna (aðilar utan Evrópska efnahagssvæðisins, landeignaskrá, ráðstöfun landeigna, aukið gagnsæi o.fl.), 715. mál.

9.Fundargerð 881. fundar stjórnar sambandsins

Málsnúmer 2004066Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 881. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24. apríl sl.

10.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2020

Málsnúmer 2001002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 124. fundar Félagsmálanefndar Fjallabyggðar frá 30. apríl sl.

Fundi slitið - kl. 09:10.