Bæjarráð Fjallabyggðar

544. fundur 27. febrúar 2018 kl. 12:00 - 13:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður, S lista
  • Jón Valgeir Baldursson áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Ársskýrsla Slökkviliðs Fjallabyggðar 2017

Málsnúmer 1802030Vakta málsnúmer

Ámundi Gunnarsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Fjallabyggðar mætti á fundinn og fór yfir ársskýrsluna.

Slökkviliðisstjóra er falið að uppfæra skýrsluna í samræmi við þær athugasemdir sem fram komu á fundinum.

2.Trúnaðarmál - Starfsmannamál

Málsnúmer 1802083Vakta málsnúmer

Niðurstaða færð í trúnaðarbók.

3.Útboð Grunnskólalóð, Ólafsfirði

Málsnúmer 1802086Vakta málsnúmer

Deildarstjóri tæknideildar óskar eftir heimild til lokaðs útboðs vegna framkvæmda við 1. áfanga grunnskólalóðarinnar á Ólafsfirði. Eftirtöldum verktökum yrði gefinn kostur á að bjóða í verkið:

Bás ehf.
Sölvi Sölvason ehf.
Smári ehf.
Árni Helgason ehf.
Magnús Þorgeirsson ehf.

Bæjarráð samþykkir að veita heimild til lokaðs útboðs.

4.Malbikun 2018 útboð/verðkönnun

Málsnúmer 1802084Vakta málsnúmer

Deildarstjóri tæknideildar óskar eftir heimild til lokaðs útboðs á malbikun í Fjallabyggð 2018. Eftirtöldum yrði gefinn kostur á að bjóða í framkvæmdina:

Malbikun KM ehf.
Kraftfag ehf.
Malbikunarstöðin Hlaðbær-Colas hf.

Bæjarráð samþykkir að veita heimild til lokaðs útboðs.

5.Fráveita Ólafsfirði 2018

Málsnúmer 1802087Vakta málsnúmer

Deildarstjóri tæknideildar óskar eftir heimild til lokaðs útboðs á lokaáfanga á endurbótum fráveitukerfis í Ólafsfirði. Eftirtöldum verktökum yrði gefinn kostur á að bjóða í verkið:

Árni Helgason ehf.
Bás ehf.
Smári ehf.

Bæjarráð samþykkir að veita heimild til lokaðs útboðs.

6.Stefnumótun fyrir Héraðsskjalasafn Fjallabyggðar 2018-2021

Málsnúmer 1801008Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sátu Ríkey Sigurbjörsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda og menningamála og Hrönn Hafþórsdóttir forstöðumaður bókasafns Fjallabyggðar.

Farið var yfir stefnumótun fyrir Héraðsskjalasafn Fjallabyggðar.

Bæjarráð felur deildarstjóra og forstöðumanni að skila tillögum að húsnæðiskosti fyrir safnið.

7.Málefni fatlaðra 2018

Málsnúmer 1802078Vakta málsnúmer

Lögð fram umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um drög að reglugerð um framlög vegna þjónustu við fatlað fólk 2018.

Bæjarráð óskar eftir að deildarstjóri félagsmáladeildar mæti á næsta fund bæjarráðs og fari yfir málið.

8.Bifreiðamál TÁT, afnot og rekstur

Málsnúmer 1801089Vakta málsnúmer

Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda og menningamála sat undir þessum lið.

S. Guðrún Hauksdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Skólastjóri TÁT óskar eftir samþykki fyrir því að hefja viðræður við Bílaleigu Akureyrar vegna langtímaleigu á tveimur bifreiðum. Þessar tvær bifreiðar koma í stað núverandi bifreiðar sem hefur reynst mjög dýr í rekstri og aksturs starfsmanna á einkabifreiðum.

Bæjarráð samþykkir beiðnina fyrir sitt leyti.

9.Húsaleigusamningur Sellu tannlækna ehf

Málsnúmer 1802070Vakta málsnúmer

Tekið fyrir bréf frá Sellu tannlæknum ehf., þar sem óskað er eftir lækkun á leigu á aðstöðu tannlæknastofunnar á Hornbrekku.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar að ræða við forsvarsmenn Sellu tannlækna ehf.

10.Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 1802071Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga. Aðalfundur sjóðsins verður haldinn 23. mars n.k. á Grand hóteli í Reykjavík.

11.Ungmennaskipti á Íslandi vikuna 10-17. ágúst 2018

Málsnúmer 1802074Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Álfi, áhugafélagi um listir og fræðslu ungmenna. Félagið stendur fyrir ungmennaskiptum í samstarfi við Rannís og Erasmus dagana 10.-17. ágúst. Þar koma saman ungmenni frá Portúgal og Íslandi að deila list sinni og kynnast menningu hvers annars. Óskað er eftir húsnæði til leigu í u.þ.b. 3 sólarhringa, þar sem ungmennin gætu haft aðstöðu.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

12.Dagur byggingariðnaðarins á Norðurlandi

Málsnúmer 1802082Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Viðburðastofu Norðurlands þar sem komið er á framfæri upplýsingum um Dag byggingariðnaðarins á Norðurlandi sem haldinn verður á Akureyri þann 14. apríl n.k.. Að viðburðinum standa Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi, Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og Samtök iðnaðarins. Þar stendur til að vekja athygli á því sem verið er að gera í byggingar- og mannvirkjageiranum á Norðurlandi sem og að vekja athygli á verk- og tækninámi.

13.Koma skemmtiferðaskipa á Siglufjörð 2018

Málsnúmer 1711062Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar niðurstöður viðtalsrannsóknar um móttöku skemmtiferðaskipa á Íslandi. Rannsóknin var unnin fyrir Rannsóknamiðstöð ferðamála af Þórnýju Barðadóttur.

Skýrsluna má nálgast á eftirfarandi vefslóð:

http://www.rmf.is/static/research/files/mottaka-skemmtiferdaskipa-rmf-2017-03pdf

14.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2018

Málsnúmer 1801013Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 51. fundar fræðslu- og frístundanefndar, 222. fundar skipulags- og umhverfisnefndar og 109. fundar félagsmálanefndar.

Fundi slitið - kl. 13:00.