Bæjarráð Fjallabyggðar

541. fundur 06. febrúar 2018 kl. 12:00 - 13:20 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Hilmar Elefsen boðaði forföll.

1.Samningur um 17. júní 2018

Málsnúmer 1802003Vakta málsnúmer

Undir þessum lið vék Jón Valgeir Baldursson af fundi.

Undir þessum lið sat Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda og menningamála.

Á fundinn mættu Eggert Friðriksson, formaður Menningar- og fræðslunefndar slökkviliðsins í Ólafsfirði og Halldór Guðmundsson. Umsjón með hátíðarhöldum á 17. júní hefur verið í höndum nefndarinnar undanfarin ár.

Farið var yfir drög að nýjum samningi.

Bæjarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar.


2.Staðgreiðsla tímabils - 2018

Málsnúmer 1801014Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir staðgreiðslu útsvars í janúar 2018. Innborganir nema 85.496.527 kr. sem er 114,45% af tímabilsáætlun, sem gerði ráð fyrir 74.703.036 kr.

3.Fasteignagjöld - 2018

Málsnúmer 1802020Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi fasteignagjöld 2018.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi:

Að hámarksafsláttur af fasteignaskatti hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum verði kr. 65.000.

Að tekjuviðmið vegna afsláttar af fasteignaskatti hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum verði:

Flokkur Einstaklingar Afsláttur
1. 0 - 2.300.000 100%
2. 2.300.001 - 2.718.000 75%
3. 2.718.001 - 3.136.000 50%
4. 3.136.001 - 3.541.000 25%
5. 3.541.001 0%

Flokkur Hjón/Sambýlisfólk Afsláttur
1. 0 - 3.333.000 100%
2. 3.333.001 - 3.960.000 75%
3. 3.960.001 - 4.587.000 50%
4. 4.587.001 - 5.213.000 25%
5. 5.213.001 0%

Að afsláttarprósenta vegna fasteignaskattsstyrks til félagasamtaka verði óbreytt 100%.

Að fjöldi gjalddaga verði átta, frá 1. mars til 1. október og nái álagning fasteignagjalda á fasteign ekki 35.000 á gjaldanda, sé öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga.

4.Vettvangsliðateymi í Ólafsfirði

Málsnúmer 1802013Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Björgunarsveitinni Tindi, Ólafsfirði, þar sem farið er yfir afstöðu björgunarsveitarinnar vegna myndunar vettvangsliðateymis í Ólafsfirði.
Málið verður tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs og mun formaður björgunarsveitarinnar mæta á fundinn.

5.Græn skref í ríkisrekstri

Málsnúmer 1801082Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Láru Stefánsdóttur, skólameistara Menntaskólans á Tröllaskaga, þar sem sveitarfélaginu er gert kunnugt um að skólinn er orðinn þátttakandi í Grænum skrefum í ríkisrekstri og er það hluti af umhverfismálum skólans. Vonast er eftir góðu samstarfi við sveitarfélagið, sem er eigandi húsnæðisins sem skólinn er starfræktur í.

Bæjarráð fagnar framtakinu og tekur jákvætt í erindið.

6.Til umsagnar: Drög að lagafrumvarpi um fiskeldi

Málsnúmer 1802001Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem kemur fram að sambandið vinni að umsögn um drög að lagafrumvarpi um breytingar á ákvæðum um fiskeldi.
Umsagnarfrestur er til 9. febrúar n.k.

7.Samningar um samstarf sveitarfélaga

Málsnúmer 1801083Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem óskað er eftir upplýsingum um alla samstarfssamninga sem Fjallabyggð er aðild að. Unnið er að því í ráðuneytinu að afla heildstæðra upplýsinga um samstarfssamninga sveitarfélaga um land allt og leggja mat á hversu vel þeir samræmast kröfum sem gerðar eru til slíkra samninga í lögum. Frestur til að skila upplýsingum er til 1. mars n.k.

Bæjarráð felur deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála afgreiðslu málsins.

8.Til umsagnar 50. mál frá nefndasviði Alþingis - tillaga til þingsályktunar um þjóðarsátt um bætt kjör kvennastétta

Málsnúmer 1801100Vakta málsnúmer

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um þjóðarsátt um bætt kjör kvennastétta, 50. mál.

Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2018

Málsnúmer 1801013Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð frá 50. fundi fræðslu- og frístundanefndar sem haldinn var 31. janúar 2018.

Fundi slitið - kl. 13:20.