Bæjarráð Fjallabyggðar

924. fundur 02. júlí 2026 kl. 08:15 - 10:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
  • Pálmi Blængsson varafulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Fiskhjallar í Ólafsfirði

Málsnúmer 2606064Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá sviðsstjóra um fyrirhugaða tiltekt á svæðinu við hjallana í Ólafsfirði en gert er ráð fyrir að taka þurfi til á svæðinu með vinnuvélum.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs fyrir minnisblaðið. Verkið er viðamikið og krefst aðkomu vinnuvéla. Rætt um að nýta hluta af efninu í brennu sem verður á Síldarævintýrinu og á áramótabrennu í Ólafsfirði. Áætlaður kostnaður er 3-5 milljónir og taki um 10 daga. Bæjarstjóra og sviðsstjóra falið að setja verkið í gang með verktaka enda rúmist kostnaður innan fjárhagsáætlunar ársins.

2.Strandmenningarhátíð 2026 - styrkumsókn

Málsnúmer 2606071Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Vitafélaginu sem skipuleggur hátíðina "Auður hafs og stranda" sem haldin verður á Siglufirði dagana 27. - 30.ágúst n.k. Meðfylgjandi erindinu er kostnaðaráætlun og drög að metnaðarfullri dagskrá.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar Vitafélaginu fyrir erindið og metnaðarfulla dagskrá á Siglufirði í lok ágúst. Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið um kr. 200.000

3.Tækja - og búnaðarkaup Þjónustumiðstöðvar 2026

Málsnúmer 2606072Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá þjónustumiðstöð um kaup á sexhjóli til að styðja við verkefni þjónustumiðstöðvar. Hjólið myndi nýtast til girðingarvinnu, verkefni vinnuskóla, undirbúning skíðasvæðis og svo í starfsemi vatns - og fráveitu. Áætlaður kostnaður um 3-3,5 milljónir króna.
Samþykkt
Erindið snýst um að fjárfesta í sexhjóli til að nýta í hin ýmsu verkefni fyrir þjónustumiðstöðina. Að mati bæjarráðs liggja fyrir góð rök fyrir þörf á svona tæki, ekki síst til að bæta vinnuaðstöðu og öryggi fyrir starfsmenn. Bæjarráð samþykkir að umrætt tæki verði keypt og rúmast kostnaður innan fjárfestingaáætlunar ársins.

4.Ósk um styrk vegna Hopplands á Síldarævintýri

Málsnúmer 2606076Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá stýrihópi um Síldarævintýri þar sem sótt er um styrk fyrir barnadagskrá á Síldarævintýrinu. Óskað er eftir styrk til að standa straum að kostnaði við Hoppland sem ætlun er að verði með viðburð við höfnina.
Samþykkt
Bæjarráð samþykktir að veita styrk til barnadagskrár á vegum Hopplands á Síldarævintýrinu að fjárhæð kr. 250.000. Aðgangur verður ókeypis fyrir alla upp að 18 ára aldri og frír aðgangur að blautbúningum fylgir.

5.Samtal vegna kjarasamninga 2026

Málsnúmer 2606077Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Einingu/Iðju þar sem óskað er eftir upplýsingum um hvort búið sé að marka stefnu Fjallabyggðar varðandi gjaldskrár sveitarfélagsins á komandi kjörtímabili.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Vinna við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 fer að fara af stað. Ekki liggur fyrir stefna hjá Fjallabyggð varðandi gjaldskrárbreytingar á næsta ári en vilji er hjá bæjarstjórn að öllum breytingum verði stillt í hóf. Hafa ber í huga að álagningarhlutfall fasteignagjalda í Fjallabyggð var lækkað fyrir árið 2026 auk þess sem almennar gjaldskrárhækkanir voru að jafnaði undir verðlagsþróun.

6.Ráðning bæjarstjóra

Málsnúmer 2605057Vakta málsnúmer

Umsóknarfresti um starf bæjarstjóra lauk 28. júní s.l.
Lagt fram til kynningar
Alls sóttu 22 aðilar um starf bæjarstjóra í Fjallabyggð en það er ráðningastofan Intellecta var fengin til að sjá um að auglýsa starfið. Ánægjulegt hvað mikið var um góðar umsóknir og næsta skref er að fá umsækjendur í viðtal. Til stendur að birta lista yfir umsækjendur.

7.Regluverk um búfjárbeit - sjónarmið matvælaráðuneytis

Málsnúmer 2402026Vakta málsnúmer

Fyrir liggja minnisblöð frá matvælaráðuneyti er varðar framkvæmd lagaákvæða um búfjárbeit og ágangsfé.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir m.a. hvort þörf sé á að uppfæra afréttarskrár og fjallskilasamþykktir.

8.Reglugerð um fjölþættan vanda

Málsnúmer 2606016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna reglugerðar um fjölþættan vanda.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð Fjallabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.

Bæjarráð Fjallabyggðar telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taka þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.

9.Framboð til stjórnar Sambandsins

Málsnúmer 2606079Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bréf frá kjörnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem minnt er á framboð til stjórnar Sambandsins.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

10.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð 50.fundar Skólanefndar Tónlistarskólans á Tröllaskaga þar sem m.a. var samþykkt að ráða Þorvald Eyfjörð Kristjánsson tímabundið í eitt ár í 50% stöðugildi skólastjóra TÁT og Hauk Orra Kristjánsson tímabundið i 50% stöðugildi aðstoðaskólastjóra.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

11.Launayfirlit tímabils - 2026

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi yfirlit launakostnaðar fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2026. Áfallinn launakostnaður er 90,6% af tímabilsáætlun.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:00.