Málsnúmer 2605057Vakta málsnúmer
Fyrir liggur ráðningarsamningur við Hafdísi Huld Björnsdóttur sem bæjarstjóra kjörtímabilið 2026-2030 með fyrirvara um staðfestingu bæjarstjórnar. Jafnframt liggja fyrir upplýsingar um ráðningarferlið og umsækjendur frá Intellecta sem sá um ferlið.
Forseti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi tillögu með greinargerð:
„Við myndun nýs meirihluta og í málefnasamningi kom skýrt fram að staða bæjarstjóra yrði auglýst fyrir komandi kjörtímabil. Til að ferli og framkvæmd yrðu fagleg og gegnsæ var ráðningarskrifstofan Intellecta fengin til þess að annast ferlið frá auglýsingu og fram að ráðningu. 22 sóttu um stöðu bæjarstjóra, tveir drógu til baka, einn á fyrri stigum og annar á seinni stigum. Átta voru boðaðir í fyrra viðtal að undangengnu hæfnismati sem miðaðist við kröfur auglýsingu. Eftir hæfnismat úr fyrra viðtali var þremur boðið í seinna viðtal sem fór fram í Menntaskólanum á Tröllaskaga sem fulltrúi ráðningarskrifstofunnar leiddi. Að loknu seinna viðtali var aftur gefið hæfnismat.
Allir kjörnir bæjarfulltrúar S-lista og H-lista og varamenn tóku þátt í viðtölum við umsækjendur auk fulltrúa Intellecta, en þó ekki allir í einu. Þannig fékkst meiri dýpt á mati í matsferli. Þá var einnig samtal á milli aðila á S-lista og H-lista. Einn einstaklingur skoraði hæst í hæfnisviðmiði og leggur forseti hér fram til samþykktar ráðningarsamning í starf bæjarstjóra við Hafdísi Huld Björnsdóttur og jafnframt er lögð fram tillaga um prófkúruumboð til nýs bæjarstjóra.“
Samþykkt
Samþykkt með 7 atkvæðum að taka til afgreiðslu ákvörðun um kjörstaði.