Ungmennaráð Fjallabyggðar

46. fundur 18. mars 2026 kl. 12:00 - 12:45 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Jason Karl Friðriksson Aðalmaður
  • Jana Katrín Merenda Aðalmaður
  • Björn Helgi Ingimarsson Aðalmaður
  • Jasmín Þóra Harrimache Aðalmaður
  • Haukur Rúnarsson Varamaður
  • Elis Beck Kristófersson Varamaður
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri

1.Farsældarráð SSNE

Málsnúmer 2603031Vakta málsnúmer

Beiðni frá Farsældarráði SSNE um kynningu frá ungmennaráði.
Samþykkt
Óskað hefur verið eftir að Ungmennaráð Fjallabyggðar verði með kynningu á starfi sínu þann 8. apríl hjá Farsældarráði Norðurlands eystra.
Ungmennaráð mun kynna starfsemi ráðsins.

2.Bæjarstjórnarfundur unga fólksins 2026

Málsnúmer 2602026Vakta málsnúmer

Áframhald undirbúnings fyrir bæjarstjórnarfund unga fólksins.
Lagt fram til kynningar
Rætt um málefni og undirbúning fyrir fund með bæjarstjórn.

3.Raddir ungs fólks - samtal við ráðamenn

Málsnúmer 2602027Vakta málsnúmer

ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðvar íþróttahéraða og Ungmennaráð UMFÍ vinnur um þessar mundir að landsverkefninu Raddir ungs fólks - samtal við ráðamenn, sem snýst um að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri um íþrótta- og æskulýðsstarf í samtali við ráðafólk og sveitarfélög á sínu landssvæði.
Samþykkt
Fulltrúum ungmennaráðs er boðið að taka þátt í landsverkefninu Raddir ungs fólks sem haldið verður á Akureyri 24. mars frá klukkan 12-14.
Fulltrúar ungmennaráðs sjá sér ekki fært að mæta að þessu sinni.

4.Áform um mótun ungmennastefnu

Málsnúmer 2603005Vakta málsnúmer

Menntamálaráðuneytið er með áform um mótun ungmennastefnu í samráðsgátt og biður m.a. um athugasemdir ungmenna.
Lagt fram til kynningar
Í samráðsgátt stjórnvalda eru áform um gerð ungmennastefnu og kallað eftir sjónarmiðum ungmennaráða. Farið var yfir nokkrar umsagnir og sviðsstjóri hvatti ungmennin til að skoða þær vel þar sem þar gæti verið að finna hugmyndir m.a. sem hægt væri að ræða á fundi með bæjarstjórn.

5.Ungmennaráð - önnur mál 2026

Málsnúmer 2602016Vakta málsnúmer

Önnur mál
Samþykkt
Ungmennaráð telur mikilvægt að auka kennslu í fjármálalæsi bæði í grunn- og framhaldsskóla og hvetur til þess að það verði gert.

Fundi slitið - kl. 12:45.