Fréttir

Sjósetning Sólberg ÓF 1

Um helgina var hinn nýi frystitogari Ramma hf., Sólberg ÓF 1, sjósettur í Tersan skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Skipið er 80 metra langt og 15,4 metra breitt. Reiknað er með að skipið verði afhent í janúar á næsta ári.
Lesa meira

Bókasafnsdagurinn - lestur er bestur

Bókasafnsdagurinn verður haldinn hátíðlegur þann 8.september 2016.
Lesa meira

135. fundur bæjarstjórnar

135. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar Gránugötu 24 Siglufirði 7. september 2016 kl. 17.00
Lesa meira

Skóflustunga tekin að viðbyggingu Menntaskólans á Tröllaskaga í Ólafsfirði

Í dag föstudaginn 2. september kl. 16:00 tók Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra skóflustungu að viðbyggingu Menntaskólans á Tröllaskaga í Ólafsfirði. Byggingin verður ríflega 200 m2 og mun þar meðal annars verða matar-, félags- og fundaraðstaða. Áætlað er að framvæmdum ljúki í ágúst 2017 og mun hún bæta verulega alla aðstöðu nemenda.
Lesa meira

Vetrardagskrá dagþjónustu aldraðra

Dagþjónusta aldraðra á Siglufirði fer fram í Skálarhlíð, Hlíðarvegi 45. Vetrarstarfið er nú að komast í gang og hefst formlega mánudaginn 5. september. Eru allir eldri borgarar og öryrkjar hvattir til að kynna sér starfið og þær tómstundir sem þar eru í boði.
Lesa meira

Uppbygging vegar að skógræktinni

Vinna er þegar hafin við lagfæringar og uppbyggingu vegar að Skógrækt Siglufjaðar. Vegurinn verður breikkaður og sett upp nýtt rimlahlið. Ráðgert er að hækkunin verði um einn meter þar sem vegurinn er lægstur. Framkvæmdin er styrkt af Vegagerðinni, EBÍ og Landgræðslu ríkisins. Áætluð verklok verða um komandi helgi.
Lesa meira

Skóflustunga að nýrri viðbyggingu við Menntaskólann á Tröllaskaga

Skóflustunga að nýrri viðbyggingu við Menntaskólann á Tröllaskaga.
Lesa meira

Tónlistarskólinn á Tröllaskaga - Fréttatilkynning

Frá því í byrjun árs 2014 hafa sveitarfélögin Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð verið í samstarfi er lýtur að því að hafa einn skólastjóra yfir tónlistarskólum sveitarfélaganna. Það samstarf hefur gengið ágætlega. Í samningi sem var gerður um þetta samstarf var ákvæði þar sem lýst var yfir vilja til frekara samstarfs og jafnvel yrði skrefið stigið til fulls og skólarnir sameinaðir. Í febrúar sl. var fræðslustjórum sveitarfélaganna falið að hefjast handa við að formgera samning með það að markmiði að Tónskóli Fjallabyggðar og Tónlistarskóli Dalvíkurbyggðar yrðu sameinaðir í einn skóla.
Lesa meira

Ársskýrsla leikskóla Fjallabyggðar 2015-2016

Á 30. fundi fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar þann 23. ágúst 2016 var lögð fram ársskýrsla Leikskóla Fjallabyggðar fyrir starfsárið 2015 - 2016.
Lesa meira

Ársskýrsla Grunnskóla Fjallabyggðar 2015 - 2016

Á 30. fundi fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar þann 23. ágúst 2016 var lögð fram ársskýrsla Grunnskóla Fjallabyggðar fyrir skólaveturinn 2015 - 2016. Ársskýrsla Gunnskóla Fjallabyggðar 20015-2016
Lesa meira