Heimsókn á Hornbrekku í dagdvöl

Málsnúmer 2610028

Vakta málsnúmer

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 12. fundur - 08.10.2026

Nefndin fór í heimsókn á Hornbrekku.
Samþykkt
Nefndarmenn fóru í heimsókn og skoðuðu aðstöðu dagdvalar á Hornbrekku. Gerður sem hefur umsjón með starfinu fór yfir og sýndi nefndarmönnum aðstöðuna og sagði frá óskum um betri búnað og aukið rými. Viðræður standa yfir við HSN um rými og horft verður til búnaðaróska nú við gerð fjárhagsáætlunar.