Reglugerð um fjölþættan vanda

Málsnúmer 2606016

Vakta málsnúmer

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 9. fundur - 11.06.2026

Tekið fyrir tölvupóstur dags.28.04 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem áhyggjum er líst yfir að með reglugerðinni væri verið að þrengja skilgreiningar á þeim hópi barna sem eru skilgreind með fjölþættan vanda. Reglugerðin er í vinnslu eftir samráð.
Lagt fram til kynningar
Tölvupóstur barst þann 28.04.2026 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem fram koma áhyggjur að með reglugerðinni sé verið að þrengja skilgreiningar gagnvart þeim hópi barna sem eru skilgreind með fjölþættan vanda. Reglugerðin er nú í vinnslu en samráði lauk 12. maí.

Mennta- og barnamálaráðuneytið leggur til að sett verði ný reglugerð um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins, á grundvelli 3. mgr. 21. gr. laga um fatlað fólk með fjölþættar stuðningsþarfir, nr. 38/2018, og 3. mgr. 7. gr., sbr.4. mgr. 79. og 5. mgr. 80. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.

Í drögunum er m.a. fjallað um skilgreiningu vegna barna með fjölþættar stuðningsþarfir, upphaf og vinnslu mála hjá sérfræðingateymi, ákvörðun um vistun barna í sérhæft úrræði á vegum ríkisins og endurmat á þörf fyrir vistun í slík úrræði.

Markmið reglugerðarinnar er að skýra nánar hvaða börn teljast hafa fjölþættar stuðningsþarfir og í þörf fyrir vistun utan heimilis í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins. Þá er jafnframt kveðið á um skýra málsmeðferð vegna slíkra ákvarðana, m.a. hlutverk sérfræðingateymis, sem metur þörf fyrir vistun. Reglugerðin felur í sér útfærslu á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga þar sem ríkið tekur að sér aukna ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun sérhæfðrar þjónustu vegna barna sem þarfnast búsetu utan heimilis og hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu á þriðja stigi.

Reglugerðin tekur til barna sem glíma við flókinn og samsettan vanda sem krefst samsettrar þjónustu. Gert er ráð fyrir að vistun í sérhæfðu vistunarúrræði sé aðeins heimil þegar önnur úrræði innan heimilis og í nærumhverfi barnsins hafa verið fullreynd.