Ungmennaráð Fjallabyggðar

27. fundur 25. mars 2021 kl. 15:15 - 16:00 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Sunna Karen Jónsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Ásgerður Heimisdóttir aðalmaður
  • Þórný Harpa R. Heimisdóttir aðalmaður
  • Ásdís Ósk Gísladóttir fulltrúi UÍF
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála
Hörður Ingi Kristjánsson boðaði forföll.

1.Ungt fólk og SSNE

Málsnúmer 2103004Vakta málsnúmer

Borist hefur erindi um að skipa ungmenni frá hverju sveitarfélagi í undirbúningshóp vegna "Ungt fólk og SSNE" (Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra) fyrir viðburðinn sem fyrirhugað er að halda næsta haust með ungmennum af svæði SSNE. Ungmennaráð tilnefnir Hörð Inga Kristjánsson sem aðalmann í undirbúningshóp og til vara verða þær Þórný Harpa Rósinkranz Heimisdóttir og Elísabet Ásgerður Heimisdóttir.

2.Verkefnið SamfésPlús

Málsnúmer 2010112Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.
SamfésPlús er nýtt verkefni á vegum Samfés. Markhópurinn er allt ungt fólk á Íslandi á aldrinum 10-25 ára, en í byrjun er lögð sérstök áhersla á starfið með ungmennum 16 - 25 ára. Plúsinn sameinar, byggir brú, eflir stuðning og eykur sýnileika á mikilvægu starfi allra aðildarfélaga á landsvísu. Til að byrja með mun SamfésPlús vera að mestum hluta rafrænn og ná að byggja upp öflugan rafrænan vettvang fyrir ungt fólk á Íslandi. Ungmennaráð hvetur ungmenni á þessum aldri til að kynna sér SamfésPlús á https://www.samfes.is/samfes/plusinn



3.Fundadagatöl 2021

Málsnúmer 2011044Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:00.