Raddir ungs fólks - samtal við ráðamenn

Málsnúmer 2602027

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 45. fundur - 13.02.2026

ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðvar íþróttahéraða og Ungmennaráð UMFÍ vinnur um þessar mundir að landsverkefninu Raddir ungs fólks - samtal við ráðamenn, sem snýst um að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri um íþrótta- og æskulýðsstarf í samtali við ráðafólk og sveitarfélög á sínu landssvæði.
Í verkefninu er gert ráð fyrir að halda svæðisbundna samtalsfundi víðs vegar um landið á vormánuðum 2026. Óskað er eftir þátttöku ungmennaráða.
Afgreiðslu frestað
Ákveðið að fresta ákvörðun um þátttöku þar til fleiri nefndarmenn hafa tekið afstöðu.

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 46. fundur - 18.03.2026

ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðvar íþróttahéraða og Ungmennaráð UMFÍ vinnur um þessar mundir að landsverkefninu Raddir ungs fólks - samtal við ráðamenn, sem snýst um að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri um íþrótta- og æskulýðsstarf í samtali við ráðafólk og sveitarfélög á sínu landssvæði.
Samþykkt
Fulltrúum ungmennaráðs er boðið að taka þátt í landsverkefninu Raddir ungs fólks sem haldið verður á Akureyri 24. mars frá klukkan 12-14.
Fulltrúar ungmennaráðs sjá sér ekki fært að mæta að þessu sinni.